157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:56]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ef við sem þekkjum til á þeim svæðum sem ég nefndi hér í fyrri spurningu minni drögum ekki fram þessi sviknu loforð, hverjir eiga þá að gera það? Það er kannski fyrst og fremst þess vegna, hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson, sem ég fór inn á þetta, valdi það frekar en að fara að tala um flugið sem er þó fyllilega þess virði að ræða ítarlega. Það virðist enginn nema þeir sem þekkja til á þessu svæði sjá og skilja aðstæðurnar sem fólkið býr við. Ég man ekki betur en að einhver hafi, annar en hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, vitnað í ummæli ákveðins íbúa í Bárðardal fyrir nokkru. Sá orðaði það einhvern veginn á þá leið að hann hefði í sjálfu sér ekkert á móti því að greiða eitthvað fyrir það að geta nýtt sér vegaþjónustu ef hann hefði bara einhvern veg. Þetta kristallar svolítið stöðuna sem er í þessum sveitum og þess vegna fannst mér ástæða til að draga það fram.

Mig langar hins vegar að færa mig örlítið nær heimili hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar og nefna það sem mér hefur fundist fara lítið fyrir í umræðunni. Ég hef þó rætt það aðeins og ég veit að hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson hefur líka gert það. Þá er ég að tala um þá stöðu sem við horfum enn upp á sem er sú staðreynd að það er ekkert sem við sjáum í fyrirsjáanlegri framtíð. Það er líklega ekki fyrr en einhvern tímann um 2035 sem við hugsanlega sjáum vegkafla frá Þelamörk til Akureyrar á samgönguáætlun. Við þekkjum svo öll frestanirnar sem verða yfirleitt á áætlunum, ekki síst í ljósi þess að ríkisfjármálin stefna ekki beinlínis þannig að framkvæmdum verði flýtt. Telur hv. þingmaður það ásættanlegt í ljósi slysatíðni á þessum kafla að þetta verði kannski látið bíða, eins og ég segi, til 2035 og líklega lengur ef ríkisfjármálin fara eins og allt stefnir í?