samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þelamörk-Akureyri á þjóðvegi 1 er umferðarmesti vegur utan þéttbýlis, utan Hvítár-Hvítársvæðisins, þar um fara 3–4.000 bílar á dag. Það náðist ákveðinn árangur á síðasta kjörtímabili við að koma af stað framkvæmdum við Lónsá þar sem farið er inn í hverfið í Hörgársveit, sem er hluti af þessum vegi. Það var einmitt öryggismál og það var ánægjulegt að ná því í gegn. Þessi gatnamót, hringvegur eitt og Ólafsfjarðarvegur, sem hv. þingmaður kom inn á fyrr í umræðunni, eru gríðarlega hættuleg. Þar hefur lengi verið talað um að setja hringtorg til öryggis eða gera einhverja breytingu og það hefur líka verið talað um að færa veginn aðeins neðar til að bæta umferðaröryggi á svæðinu. Þetta eru hvort tveggja mjög stór verkefni og mjög góð. Í samgönguáætlun, ég held að það sé í 1. mgr., er talað um umferðaröryggi. Umferðaröryggi, öryggi á sjó og öryggi í lofti, í fluginu, þetta eru markmið sem ganga í gegnum alla samgönguáætlun, þau snúa að þessu. Það hefur náðst mikill árangur í umferðinni hvað varðar slysatíðni — klukkan er bara föst — á undanförnum árum. Þegar keyrður var milljarður km á Íslandi, fyrir 30 til 40 árum, urðu 30 til 40 banaslys á ári. Nú eru keyrðir 3 til 4 milljarðar kílómetra á ári og banaslysin hafa verið tíu eða 12. Það hefur náðst gríðarlegur árangur en það er alltaf höfuðmarkmiðið að bæta úr á þessu sviði. Það er mjög mikilvægt að koma framkvæmdum af stað á þessum vegarbút til (Forseti hringir.) að tryggja umferðaröryggi. — Það er bara föst mínúta hér svo ég hef lokið máli mínu.
(Forseti (EÁs): Klukkan hefur staðið á sér en ég vona að hún sé komin í lag.)