157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:01]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi ræðu. Ég ætla að vera á svipuðum slóðum og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson og fjalla svolítið um það sem er ekki í áætluninni. Mér finnst mikilvægt fyrir okkur þingmenn í kjördæminu að vekja athygli á því sömuleiðis. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hefur verið óþreytandi í því að koma á framfæri mikilvægum málum sem snúa að flugöryggi, flugvöllum og uppbyggingu þeirra. Mig langar, frú forseti, í þessu samhengi að koma inn á það að það eru vegarkaflar í okkar kjördæmi sem eru á svipuðum stað og Útkinnin. Við getum talað um Dalsmynni, vegina og brýrnar fram í Eyjafjarðarsveit sem eru sennilega eitt stærsta og öflugasta landbúnaðarsvæði landsins, alla vega á Norðurlandi; þarna er gríðarleg mjólkurframleiðsla og það er varla hægt að keyra yfir brýr á fulllestuðum mjólkurbíl. Við getum síðan farið fram í Svarfaðardal og Skíðadal, það er nákvæmlega sama sagan þar. Þetta hefur verið svona til fjölda ára. Mér finnst mjög mikilvægt, frú forseti, að vekja athygli á því að það eru einstaklingar, fjöldi manns, sem búa í landinu og eru að skapa verðmæti allan ársins hring, en hafa varla fengið eina einustu almennilegu þjónustu af okkar hendi. Það er slæmt. Talandi um farsímasamband á þessum svæðum; það er nú ansi gloppótt sömuleiðis, en það er nú fjallað um farsímasamband í samgönguáætlun. Það eru þessir vegir; þessir einstaklingar eiga það inni hjá okkur að við veitum þeim sömu þjónustu og sömu tækifæri og öðrum íbúum þessa lands.