samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir mjög góðar spurningar; það er fínt að koma inn á þær og bæta aðeins við. Ég ætla að bæta Suðurfjarðarvegi við; ég held að fólk átti sig ekki á ástandinu þar eins og komið hefur fram hjá öðrum hv. þingmönnum úr Norðausturkjördæmi. Sá sem hér stendur hefur verið með þingsályktunartillögu í mörg ár um það mál og þar er hægt að lesa sér til um umferðaröryggi. Besta leiðin til að sjá raunverulega slysahættu, þ.e. hvaða líkur eru á því að hver og einn bílstjóri lendi í einhverju þegar hann er að keyra á vegunum, eru eknir km og slysatíðni; ég vildi koma því að að tíðnin er mjög há þar. Það er mikilvægt að huga að Dalsmynni sem er ákveðin varaleið og mikilvæg leið í Eyjafirði til austurs, tengingin við Fnjóskadal og síðan Ljósavatnsskarðið áfram. En þess gætir ekki nokkurs staðar að verið sé að tala um það. Ætli 10% af mjólkurkvótanum séu ekki í Eyjafjarðarsveit í dag? Þar er gríðarlega öflugt svæði og öflug bú. Þar eru þessar gömlu brýr sem væntanlega eru sumar aldagamlar, svipað og gömlu brýrnar við Akureyrarflugvöll sem urðu 100 ára fyrir tveim til þrem árum; sama lag á þeim og svipaðar tímasetningar, mögulega aðeins yngri. En það er ekkert talað um þetta, ekki svo að ég sjái merki um það. Við vitum að vinnuvélar, stórir traktorar og dráttarvélar með tæki og tól — menn fara þar yfir á vöðum, þeir komast ekki yfir brýrnar. Svarfaðardalur er sama dæmi, þar eru mjög þröngir vegir, bæði inni í Skíðadal og sérstaklega í innanverðum Svarfaðardal. Þar eru sjö eða átta stór bú. Við vorum eitthvað komin áleiðis, held ég, ég hef ekki kannað það nýlega, í þeirri vinnu sem við unnum fyrir síðustu samgönguáætlun. Skíðadalurinn, farsímasambandið — ég kom inn á það áðan, það er gríðarlega mikilvægt. Í raun er það áhyggjuefni, miðað við að 2G og 3G eru að detta út, hvaða áhrif það hefur.