samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Mér finnst nefnilega að þegar við fjöllum um samgöngumál þá komum við inn á þessa mikilvægu þjónustu sem hið opinbera er að veita íbúum sem eru jú að borga til samfélagsins, eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson kom inn á áðan þegar hann vitnaði til bóndans í Bárðardal sem keyrði um á rafmagnsbíl og sá ekkert eftir því að borga kílómetragjaldið en hefði svo sem kosið að hafa veg til að keyra á. Það er kannski það sem mjög margir búa við. En þarna er ekki massinn af fólki, massinn af fólkinu býr á suðvesturhorninu. En ég hef ekki heyrt neinn þingmann tala í þá átt að vilja taka jaðarinn á byggðinni nær miðju, engan. Við tölum öll um það, virðulegur forseti, að halda byggð í landinu sem víðast og treysta byggð. Þá er líka mikilvægt að við sýnum það í verki. Þess vegna finnst mér það svo mikilvægt, þegar er alltaf verið að tala um arðsemi á framkvæmdum, að við vitum það alveg að það verður ekki arðsemi af fáförnum vegum. Við erum alltaf að horfa til frænda okkar í Færeyjum sem hafa borað göng þar sem búa ellefu manns. Auðvitað er það dæmi sem er svolítið öfgakennt en það er akkúrat þetta sem við erum að fjalla um í samgönguáætlun, þ.e. umferðaröryggi og að bæta líðan íbúa (Forseti hringir.) og tryggja að þeir hafi aðgang og tækifæri til að geta sótt atvinnu og afþreyingu.