157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:12]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Það er full ástæða til að fagna þessari samgönguáætlun. Hún er metnaðarfull og skýr og, eins og hefur svo oft komið fram, að fullu fjármögnuð í stað þess að vera einhvers konar óskalisti eins og t.d. forgangslisti jarðganga frá árinu 2020 var. Þarna er ólíku saman að jafna því að hér eru útgjöld næstu fimm ára upp á 361 milljarð kr. þegar studd af fjármálaáætlun þessa sama tímabils. Eitt af því sem verið er að gera er að stórauka framlög til viðhaldsverkefna, úr 12–13 milljörðum árlega upp í 17,5 milljarða strax á þessu ári og svo 20 milljarða á ári frá 2027. Þetta gerir okkur kleift að fara að vinna á innviðaskuldinni í samgöngukerfinu. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni þýðir þessi mikla viðbót til viðhalds að í stað þess að leggja um 300 km af bundnu slitlagi árið 2024 og endurbæta burðarlag á um 30 km kafla verður í ár hægt að leggja um 400 km af bundnu slitlagi og hægt verður að bæta burðarlög um 60 km, sem er tvöföldun. Hægt verður að bæta enn meira við á næstu árum.

Komin er áætlun um að útrýma öllum einbreiðum brúm á hringveginum, auk þess sem fjárveiting til vetrarþjónustu á fyrsta tímabili áætlunarinnar verður aukin um tæpa 14 milljarða kr. frá tillögu að samgönguáætlun haustið 2023 sem er mikið fagnaðarefni.

Það er staðreynd að samgönguáætlun snýst um að forgangsraða og skipta því fjármagni sem í boði er á þann skynsamlegasta og hagkvæmasta hátt sem mögulegt er. Að settu marki eru margar leiðir en að lokum þarf að velja eina, þó að mörg sjónarmið togist svo sannarlega á og vegir liggi til allra átta. Það eru margir um hituna og ljóst að aldrei verða allir sáttir og margir sem þykja þau bera skarðan hlut frá borði.

Núna langar mig að benda á sérstöðu Suðurkjördæmis, sem nær frá Reykjanestánni og austur fyrir Hornafjörð. Þetta er gríðarlega víðfeðmt kjördæmi þannig að ég stikla aðeins á mjög stóru. Sérstaða kjördæmisins er sú að allir ferðamenn sem koma til landsins snerta það með einum eða öðrum hætti. Keflavíkurflugvöllur er í kjördæminu og nú þegar breikkun Reykjanesbrautar er að ljúka þarf t.d. að huga að veginum frá Fitjum og að flugstöðinni þar sem myndast oft miklar biðraðir á álagstímum. Þingvellir, Gullfoss og Geysir eru í kjördæminu og umferð að og frá þessum stöðum og í sveitunum í kring er mikil og margir vegir verulega illa farnir. Í þessum sveitum margfaldast íbúafjöldinn flestar helgar ársins og yfir sumartímann, ofan á alla þá ferðamenn sem koma í dagsferðir á vinsæla áfangastaði. Umferð og álag á vegina í uppsveitunum, í Flóanum og Rangárvallasýslunum er víða mikið og ekki í neinu samræmi við íbúafjölda á staðnum.

Svo má fara austur í Vík í Mýrdal. Göng um Reynisfjall eru sem betur fer komin á blað en ekki á framkvæmdaáætlun. Ég ætla að játa það að þegar ég heyrði fyrst um göng í gegnum Reynisfjall fannst mér það fáránleg hugmynd en núna er ég orðin einarður stuðningsmaður þeirra. Það fara nefnilega fleiri bílar um Reynisfjall til Víkur en um Holtavörðuheiðina á hverjum degi. Vel yfir 5.000 bílar fara þessa leið sem er oft hættuleg yfirferðar og gæti flokkast sem hálendisvegur, auk þess sem öll þessi umferð fer beint í gegnum Vík þar sem þjóðvegur 1 klýfur bæinn. Göng um Reynisfjall eru því öryggismál og mig langar að vitna í ályktun fyrrverandi og núverandi skólabílstjóra frá október í fyrra. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Í hópi þeirra fyrrverandi og núverandi skólabílstjóra sem eru hér undirritaðir er margra áratuga reynsla af skólaakstri í Mýrdal. Við höfum sótt og skilað börnum til og frá skóla og alltaf komið þeim heilum á áfangastað. Við þökkum fyrir það á hverjum degi að sú gæfa hafi fylgt okkur í akstri öll þessi ár. En því er ekki að neita að stundum hefur svo sannarlega litlu mátti muna í því veðravíti sem leiðin norðan Reynisfjalls er.

Það verður aldrei of oft sagt hversu brýnt samgöngu- og öryggismál nýr láglendisvegur um Mýrdal með jarðgöngum í gegnum Reynisfjall er.“

Ég ætla ekki í þessari ræðu austar en þetta í bili en langar einnig að draga fram Vestmannaeyjar sem eru algerlega háðar samgöngum á sjó og/eða flugi. Miðað við hversu háðar Eyjarnar eru sjósamgöngum skýtur það skökku við að Herjólfur sé settur stjórnsýslulega undir almenningssamgöngur, eins og strætó. Það hefur þau áhrif að framlög vegna hans minnka töluvert á árunum 2026–2030 sem veldur t.d. því að Vegagerðin sér núna ástæðu til einhvers konar endurnýjunar samnings um rekstur ferjunnar. Herjólfur er þjóðvegurinn til Vestmannaeyja. Hann er hluti af þjóðvegi 1 en ekki einn kostur í ferðamáta eins og almenningssamgöngur eru. Það má því alls ekki skerða þjónustu Herjólfs og í því samhengi þarf líka að tryggja dýpkun Landeyjarhafnar og að ekjubrú ferjunnar standist öryggiskröfur; lagfæring hennar má því varla bíða fram til 2029.

Ég hef núna í örstuttu máli stiklað á mjög stóru um málefni Suðurkjördæmis og ég vona að hv. umhverfis- og samgöngunefnd taki tillit til sérstöðu svæðisins vegna mikillar og stöðugrar umferðar þar í umfjöllun sinni um þessa annars glæsilegu samgönguáætlun. Á sama tíma geri ég mér grein fyrir að þarfirnar eru margar og víða er pottur brotinn. Innviðaskuldin er gríðarleg og það er forgangsverkefni að koma í veg fyrir að hún aukist, eins og stefnt er að í þessari glæsilegu samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þessi ríkisstjórn stendur svo sannarlega undir nafni sem verkstjórn.