157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:18]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég get tekið undir sumt af því sem þar kemur fram. En mig langar að spyrja hv. þingmann sérstaklega út í það sem hún nefndi varðandi Vestmannaeyjar og ferjuna. Við höfum gjarnan nefnt ferjuna þjóðveg hér í þessum sal, og reyndar hef ég líka heyrt að Eyjamenn tala gjarnan um hana sem þjóðveg. Og þetta er þjóðvegur. Nú er það þannig að samgöngur til Vestmannaeyja eru algerlega óásættanlegar hluta árs. Ég held, ef ég man þetta rétt úr skýrslu Ríkisendurskoðunar, að það fari um 500 millj. kr. á ári hverju í það að moka sandi úr höfninni og er það þó alls ekki nóg að mati heimamanna. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvaða lausnir hún sjái fyrir sér á samgöngum til Vestmannaeyja þannig að þær geti raunverulega virkað. Þangað þarf að liggja þjóðvegur sem virkar bæði fyrir íbúa Eyjanna en ekki síður fyrir ferðamenn og aðra sem vilja koma til Vestmannaeyja, og auðvitað fyrir atvinnulífið sjálft sem við vitum báðar að er gríðarlega öflugt í Vestmannaeyjum.