samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Stórt er spurt: Hvernig á að redda samgöngum til Vestmannaeyja og hvernig eiga þær að vera raunverulegur þjóðvegur? Þegar Herjólfur gengur eins og hann á að ganga þá er þetta bara nokkuð gott. Það eru ferðir á klukkutíma fresti, eða sem sagt á öðrum tímanum frá Eyjum og hinum tímanum frá Landeyjahöfn. En Landeyjahöfn hefur verið erfið og það þarf að bæta það og auka mokstur, hann má ekki minnka. Ég get alveg tekið undir allt sem Eyjamenn eru að tala um og hef alveg haldið þeim sjónarmiðum á lofti ásamt öðrum þingmönnum kjördæmisins. Lausnin er náttúrlega að það verði alltaf hægt að treysta á Herjólf. Það þarf að auka flugsamgöngur til Eyja og vonandi kemur sú tíð að þetta verði betra. Ég hefði alveg viljað sjá meira fyrir Suðurlandið, fyrir Vestmannaeyjar, í þessari samgönguáætlun. Ég held að það eigi við þingmenn í öllum kjördæmum. Allir þingmenn myndu vilja sjá meira. Og ég er alveg þar að það ætti að vera litið á Herjólf sem hluta af þjóðvegi. Það er engin önnur leið fyrir Eyjamenn nema flug sem er eiginlega varla raunverulegur valkostur eins og staðan er.