samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Við erum náttúrlega að tala um ástand sem hefur verið afskaplega lengi varðandi Herjólf og Landeyjahöfn. Þetta er ekki nýtt ástand sem kom með þessari ríkisstjórn, það er alveg á hreinu. Það eru í samgönguáætluninni, eftir því sem ég best veit, áætlaðar um 600 milljónir í mokstur í Landeyjahöfn … (Gripið fram í.) Nei, ég held það sé í mokstur. Þannig að það er ekki hægt að segja að það sé ekki hægt að nota Landeyjahöfn eins og hv. þingmaður gerði. Það fer náttúrlega eftir veðri og vindum og það hafa komið tímabil þar sem Landeyjahöfn hefur nýst illa. Ég hef bara ekki þekkingu til að velta því upp hvort það væri hægt að nýta hana meira ef moksturinn væri meiri, hvort það myndi alltaf duga til, en það þarf að sjálfsögðu að halda henni opinni eins mikið og kostur er. Ég tek alveg undir það.
Hvað varðar verðskrána: Í sjálfu sér finnst mér allt í lagi að Eyjamenn, sem eru algerlega háðir því að nota þetta til að komast upp á fastalandið, séu að borga minna heldur en ég sem kannski vel að hoppa þangað á einhverjum tímum. Í sjálfu sér finnst mér það allt í lagi. Hvort það standist allt, ég veit það ekki, en við erum aftur að tala um eitthvað sem hefur verið lengi við lýði.