samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að svara hv. þm. Sigríði Á. Andersen með það að umhverfis- og samgöngunefnd mun sannarlega taka þetta mál til gaumgæfilegrar skoðunar og örugglega bera uppi hagsmuni Reykvíkinga, eins og annarra Íslendinga, í umfjöllun um þetta mikilvæga mál. Ég ætla kannski að byrja á að þakka ráðherra fyrir framsöguna í þessu máli en við ræðum um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030. Umræðan um þetta mál hefur að mínu mati verið mjög góð. Hér hefur verið tekið á mjög mörgum þáttum sem varða samgöngumál. Þar hefur umferðin kannski fengið einna mestu umfjöllunina en einnig hefur töluvert verið rætt um aðra innviði, eins og hafnir og flugvelli. Það hefur verið tæpt á mjög mörgu og ég ætla þá kannski að einhverju leyti að reyna að skauta fram hjá því sem hér hefur verið mest rætt um.
Ég verð að lýsa því yfir hér í upphafi að mér finnst innviðaráðherra bara hafa staðið sig nokkuð vel hér í þinginu. Hann hefur verið duglegur við að taka til máls og vera viðstaddur umræðuna; hann hefur í raun tekið fullan þátt í umræðunni og mér finnst það mjög gott, það dýpkar umræðuna. Þá verður líka ljóst hvort ráðherrann skilur þessa þingsályktunartillögu á sama hátt og við þingmenn sem höfum verið að ræða þetta hér. Ég verð þó að sneiða aðeins að ráðherra með það að ég hefði talið skynsamlegt að þessi drög að þingsályktun hefðu farið í samráðsgátt. Það hefur reyndar verið rætt aðeins hér í dag. Þó að ég hafi ekki verið lengi á þingi þá áttar maður sig á því að þegar mál fara í gegnum samráðsgátt stjórnvalda þá verður til mikið magn af athugasemdum og gögnum og þar eru staðreyndavillur líka oft leiðréttar. Þess vegna held ég að ríkisstjórnin eigi að halda sig við það sem stendur í vinnureglum hennar um að setja mál eins og þessa þingsályktunartillögu í samráðsgátt. Það er til heilla. Af því að ráðherra var dálítið yfirlýsingaglaður þegar hann tók við og lýsti því yfir að hann teldi sig ekki bundinn af ákvörðunum fyrri innviðaráðherra eða fyrri ríkisstjórna vil ég meina að hann hafi gefið á sig ákveðið skotleyfi gagnvart gagnrýni en að sama skapi var aukinn áhugi fyrir því að skoða þessar tillögur, hvernig ráðherra hygðist setja þær fram og hver væru hugðarefni ráðherrans og forgangsatriði.
Mig langar til að rifja upp beiðni sveitarstjórna á Vesturlandi, ég ætla að leyfa mér að kalla það ákall, um svokallaðan neyðarfund í Stjórnarráðinu, með forsætisráðherra, í kjölfar þess að lýst var yfir hættuástandi á vegum á Vesturlandi þann 13. febrúar á síðasta ári þegar verulegar bikblæðingar urðu þar á tiltölulega nýjum vegi og nýlögðum. Það verður eiginlega að segjast að það skapaðist hreinlega hættuástand á vegum á Vesturlandi og þá kannski sérstaklega um Dali, Svínadal, og á Snæfellsnesi. Þessir vegir voru ófærir, ég leyfi mér að segja það, og stórhættulegir. Sveitarstjórnirnar vöktu ekki bara athygli á því að veruleg innviðaskuld væri til staðar varðandi vegi heldur vöktu þær ekki síður athygli á því að við værum mögulega ekki að vanda nægilega vel til verka við að gera við vegi eða leggja, t.d. eins og í þessu tilfelli, nýtt slitlag. Ég verð líka að segja að ég var ánægður með viðbrögð ríkisstjórnarinnar hvað þetta varðar. Það var í raun tilkynnt að brugðist yrði við með því að leggja umtalsvert fé, 3 milljarða ef ég man rétt, í viðhald og það viðhald heppnaðist, leyfi ég mér að segja, mjög vel. Það sýndi kannski að með réttum viðbrögðum og skynsemi er hægt að vinna margt gott þó að tíminn sé knappur. Ég ætla líka að hrósa ríkisstjórninni fyrir að hafa boðað aukið fé í viðhald sem er algerlega nauðsynlegt. Við erum öll sammála um að það er verulegur innviðaskortur hvað varðar viðhald á vegum og reyndar á það við um fleiri samgöngumannvirki og það er ærið verk að vinna í þeim efnum.
Þá hefur einnig verið vakin athygli á því að símasamband við þjóðvegina er lélegt og þar með er öryggi þeirra sem fara um vegina skert. Ég held að það sé líka atriði sem við þurfum að horfa á í nefndinni þegar við erum að fjalla um þessa þingsályktunartillögu og þá kosti sem lagðir eru til. Ég ætla aðeins að nefna að forgangsröðun jarðgangakosta hefur vakið upp nokkra úlfúð í samfélaginu. Ég vil bara nefna það að sú forgangsröð sem ráðherra birtir breytir í raun forgangi ganga fyrir austan og ég hef fullan skilning á því að Austfirðingar, sem hafa beðið um langa hríð eftir þessum nauðsynlegu samgöngubótum, telji sig svikna af því að færast aftar í röðina. Ég vil engu að síður segja að þeir gangakostir sem hafa verið teknir fram fyrir eru líka mikilvægir. Auðvitað væri gott ef við gætum varið meira fé til þess að bora göng en það er kannski ekki fyrir hendi akkúrat í augnablikinu og þess vegna verðum við að forgangsraða. En þá hitta ráðherrann kannski fyrir þau orð að hann telji sig ekki bundinn af samgönguáætlun fyrri ríkisstjórnar eða ráðherra. Það gæti orðið upp á teningnum í beinu framhaldi ef þessi ríkisstjórn fer frá, svo að því sé haldið til haga.
Ég ætla ekki að fara yfir einstaka kosti, við munum gera það í nefndinni. Ég held að það sé skynsamlegt fyrir okkur, líka í ljósi þess að ráðherra setti málið ekki í samráðsgátt, að lengja umsagnarfrestinn þannig að hann verði ekki 14 dagar heldur fullar fjórar vikur og aðilum gefist tækifæri til þess að skrifa góðar ábendingar og koma með tillögur. Ég mun leggja það til. Ég hlakka til að glíma við það verkefni að fullbúa þessa þingsályktunartillögu þannig að við getum síðan samþykkt hana. Vonandi gerist það á þessu vori en ég ætla samt að leyfa mér að vera hæfilega bjartsýnn á að við náum að afgreiða hana fyrir sumarið þó að við leggjum okkur öll fram. Þetta er ærið verkefni og það er til margra hluta að líta.