157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:45]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Mig langar aðeins að eiga nokkur orð um þessa ágætu samgönguáætlun. Ég tek undir margt það sem hefur verið sagt hér í dag um hana og er sammála hv. þm. Ólafi Adolfssyni að umræðan hefur að mestu verið málefnaleg en auðvitað eru skiptar skoðanir. Ég vil í fáum orðum kannski draga fram helstu þætti sem mér finnst markverðastir í þessari samgönguáætlun og það er auðvitað jákvæð umfjöllun sem hér fer fram, svo það sé nú sagt.

Fyrst má kannski nefna að það er stóraukið viðhald á vegakerfinu sem er aldeilis tímabært. Það vitum við, held ég, öll sem búum á Íslandi, hvort sem við erum að aka um á Stór-Reykjavíkursvæðinu eða förum út á landsbyggðina. Framlög til viðhaldsverkefna eru aukin verulega. Við erum að tala um úr 12–13 milljörðum árlega upp í 17,5 milljarða strax á þessu ári og svo 20 milljarða frá árinu 2027. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni þýðir þessi mikla viðbót til viðhalds að í stað þess að leggja um 300 km af bundnu slitlagi árið 2024 og endurbæta burðarlag á um 30 km kafla verður í ár hægt að leggja um 400 km af bundnu slitlagi og bæta burðarlag á 60 km.

Mikill undirbúningur og umræða hefur átt sér stað til að koma á fót svokölluðu innviðafélagi á vegum ríkisins til að flýta stærri framkvæmdum. Um er að ræða sjálfstætt félag undir fjármálaráðuneyti sem getur tekið lán, getur innheimt vegagjöld og fær árlegt samningsbundið eiginfjárframlag til verkefna frá og með árinu 2027. Þetta fyrirkomulag breytir öllu og flýtir því að verkefni verði að veruleika. Einnig á að vinna í því að aðskilja akreinar á fjölförnustu vegum landsins. Við vitum það öll að þar hafa einmitt oft skeð alvarleg slys og það er því stórt skref í að fyrirbyggja slys og bæta aðstæður þar sem hætta er á að slys verði.

Í samgönguáætlun er að finna raunhæfari nálgun á jarðgangamál en í henni er lögð fram sérstök jarðgangaáætlun. Áætlað er að hefjast handa við jarðgangagerð strax á næsta ári. Þannig hefur ríkisstjórnin einsett sér að höggva á þann hnút sem hefur verið í jarðgangagerð í mörg undanfarin ár.

Sá hluti samgönguáætlunar sem rúmast innan fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar er að fullu fjármagnaður sem er meira en hægt er að segja um síðustu tilraunir fyrri ríkisstjórna til að leggja fram fjármagnaða áætlun. Þetta hefur fengið talsvert mikla umræðu og það er efasemdartónn sem hefur heyrst frá mörgum hv. þingmönnum um hvort hægt sé að fullfjármagna verkefni til fimm ára þegar við um náttúrlega að gera fjárlög hér aðeins til eins árs, en það eru fjárlögin sem eru einmitt til eins árs en fjármálaáætlunin er til fimm ára.

Að göngum: Það hefur nú aldeilis verið fjaðrafok í kringum forgangsröðun og það er skiljanlegt því að ákveðnir landshlutar og svæði hafa auðvitað haft ákveðnar væntingar um að vera efst á lista í forgangsröðinni um næstu gangnagerð en það reyndist síðan ekki alveg verða eins og væntingar stóðu til. Skiljanlega urðu vonbrigði. Það er einfaldlega þannig að þegar maður hefur haft væntingar til einhverra hluta sem síðan verða ekki, þá verða auðvitað vonbrigðin gríðarleg. Með núverandi áætlun er samt viðurkennt að Fjarðarheiðargöng eru sem stendur ekki fjárhagslega forsvaranleg. Þessi niðurstaða var sannarlega erfið mörgum en þannig er það einfaldlega þegar þarf að forgangsraða. Þá má rétt ímynda sér að þetta hafi verið erfið ákvörðun og sannarlega ekki tekin af ráðherra og hans fólki af léttúð heldur að vandlega athuguðu máli. Ég held að við getum öll trúað því.

Fjarðarheiðargöngum er frestað og ekki forgangsraðað í samgönguáætlun. Þar er fjórum göngum forgangsraðað í töluröð á tíma samgönguáætlunar. En fjöldi annarra gangakosta, Fjarðarheiðargöng þar á meðal, bíða síðari tíma. Með því að setja Fjarðagöngin fyrir austan framar í röðinni er verið að flýta hringtengingu við fjölmennasta vinnustað Austurlands. Fjarðarheiði er opin í meira en 350 daga á ári þrátt fyrir að það komi vissulega fyrir að heiðin lokist vegna veðurs en það gerist víða á landinu. Til að mynda er Hellisheiði lokuð nokkrum sinnum á ári vegna veðurs og færðar.

Í heild sinni felur samgönguáætlunin í sér gríðarlegar framfarir og loksins er byrjað að vinna niður þá gríðarlegu innviðaskuld sem safnast hefur upp í samgöngukerfi landsmanna á undanförnum áratug eða lengur. Þess vegna held ég að við öll sem eitt hér, þingmenn, fögnum þessari áætlun og við vitum það öll að það þarf að fara að taka til hendinni. Ég tel að við getum öll verið sátt við niðurstöðuna þótt öll myndum við að sjálfsögðu vilja að ráðist yrði í enn frekara viðhald og uppbyggingu og að ráðist yrði strax í öll þau 11 jarðgöng sem eru á forgangslista. En þegar fjármagnið er takmarkað, jafnvel þótt framlög hafi verið stórlega aukin, þarf að forgangsraða verkefnum. Þá gildir einu hvaða ríkisstjórn er við völd, þær þurfa allar að forgangsraða.

Ég held að ég ætli ekki að hafa þetta lengra. Ég er þingmaður í Reykjavík, eins og sumir aðrir hér, en ég skil samt vel hugsanir og tilfinningar landsbyggðarfólksins. En ég viðurkenni að ég þekki ekki hverja einustu brú eða veg eða aðkomu að bæjum eins og margir hérna sem eru þingmenn landsbyggðarinnar. Kannski er tilfinningin eitthvað öðruvísi. En ég þekki Reykjavík og það er satt og rétt, eins og fram hefur komið hér, að það þarf margt að gera í Reykjavík. Það þarf margt að laga. Það hefur ekki verið þróun síðastliðin ár í Reykjavík sem allir eru sáttir við. Við þekkjum það öll. Það hafa verið þrengingar á götum og það heldur áfram. Það þarf að laga stofnvegi og laga heilmikið til. Eitt sem gott er líka í samgönguáætluninni er að framlög til vetrarþjónustu eru aukin og ekki veitir af þegar snjórinn kemur. Þegar hann kemur þá hefur hann í nokkur skipti undanfarið komið býsna kröftuglega. Það eru líka gríðarlega mikilvæg og mörg verkefni á Stór-Reykjavíkursvæðinu, svo að ég minnist nú ekki á hlutverk sveitarfélaganna í þeim efnum, það þarf að laga gangstéttir og fleira.

Ég vænti góðs af þessari áætlun. Mér finnst hún hafa fengið góða umræðu hérna í tvo daga í þessari fyrri umræðu. Ég sé ekki fyrir mér annað en að hún eigi greiðan gang í gegnum þingið næstu vikur og klárlega á þessu þingi. Um það er engin spurning, enda mega þessi mál ekki bíða lengri tíma. Þetta er brýnt og ef við ætlum að halda áfram með ástandið eins og það er núna þá er það einfaldlega ávísun á mögulega frekari slys og óhöpp sem ekkert okkar vill að gerist.