157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:00]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég ætla hér í minni seinni ræðu um samgönguáætlun að ræða um jarðgangakosti í Norðausturkjördæmi. Eins og þetta lítur út í dag í samgönguáætlun, þá eru Fljótagöng komin fremst á dagskrána. Fjarðagöng eiga síðan að fara til athugunar og einu göngin sem eru í sjálfu sér tilbúin til útboðs, þ.e. Fjarðarheiðargöng, eru komin aftur fyrir í röðinni. Ég verð að segja, virðulegur forseti, að þegar talað er um að ræsa vélarnar og láta verkin tala þá skýtur þetta svolítið skökku við. Vissulega eru öll jarðgöng og allar fyrirhugaðar jarðgangaframkvæmdir mikilvægar. Fljótagöng eru gríðarlega mikilvæg samgöngubót sömuleiðis. Það eru úrelt göng til vesturs, þ.e. Strákagöng, og síðan að keyra þarna yfir í Fljótin — sá vegur er við það að skilja við ef við getum orðað það þannig, þ.e. að enda fram í sjó, og þar af leiðandi er mjög mikilvægt að fara af stað í þær framkvæmdir. En við verðum að hafa það í huga að allt tekur þetta tíma og að fullyrða að hægt verði að byrja framkvæmdir við Fljótagöng fljótlega, þá í lok þessa eða næsta árs, 2026 eða 2027, ég held að það sé gott að vera bjartsýnn en ég held að það sé nokkuð óraunhæft að halda þessu fram. Það tekur tíma að hanna göngin, sömuleiðis að undirbúa útboð og það þarf að bjóða framkvæmdina út á Evrópska efnahagssvæðinu sem tekur að lágmarki um 12 mánuði. Vissulega er hægt að byrja á vegagerð og öðru sem tengist fyrirhuguðum göngum en að halda þessu fram fullyrði ég að sé veruleg bjartsýni.

Fyrir austan þá verð ég að segja það að Austfirðingar sitja algerlega eftir þegar kemur að því að reyna að stytta og auðvelda leiðir á milli byggðarlaga. Fjarðagöng eru mjög mikilvæg samgöngubót en við getum alveg horft í það þannig að Fjarðagöng eru ekki að verða að veruleika miðað við þær áætlanir sem við horfum á núna fyrr en eftir 10–15 ár og þegar Fjarðarheiðargöngum er slegið á frest, einu göngunum sem eru tilbúin til útboðs, þá sitja Austfirðingar algerlega eftir þegar kemur að þessu. Ég hefði talið nær að farið hefði verið í að bjóða Fjarðarheiðargöngin út eins og er mögulegt, byrja undirbúning á Fljótagöngum af krafti og sömuleiðis það sem snýr að Fjarðagöngum. Vissulega kostar þetta allt peninga en hér hefur verið fjallað töluvert í dag um fyrirhugaða stofnun innviðafélags og okkur hefur sömuleiðis verið tíðrætt um það hér í þessum ræðustól hversu mikilvægt það er upp á öryggi og lífsgæði íbúa á einangruðum svæðum að rjúfa einangrunina með gangagerð. En því miður, frú forseti, er það staðan að það er verið að slá meira og minna öllum framkvæmdum á frest. Ég ítreka það og vona svo innilega að það gangi eftir að hægt verði að fylgja eftir þeim stóru orðum sem hafa verið höfð hér varðandi jarðgangagerð en ég óttast að því miður verði lítið gert í jarðgangagerð á þessu kjörtímabili fyrst þau tækifæri voru ekki nýtt að bjóða út þau göng sem voru tilbúin til útboðs og fara að undirbúa af krafti Fljótagöng og sömuleiðis Fjarðagöng.