157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:27]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir sína ræðu sem kom inn á margt sem við höfum rætt hér í dag. Mig langar til að taka undir með hv. þingmanni hvað varðar Suðurkjördæmið sérstaklega. Við erum ekki að tala um svæði sem engin umferð er um. Í Suðurkjördæmi fara 80% ferðamanna sem koma til Íslands. Í Suðurkjördæmi eru gríðarlega mikil verðmæti sem verða til. Við erum að tala um framleiðslu matvæla, við erum að tala um flutning matvæla til siglinga annars staðar. Við erum að tala um íbúafjölda, vöxt þessa kjördæmis; það hefur verið gríðarlega mikil sókn víða. Ég tek því undir með hv. þingmanni þegar kemur að því hversu mikilvæg tvöföldun Reykjanesbrautar er. Jökulsá á Breiðamerkursandi, færsla þjóðvegarins í Ölfusi; allt eru þetta verkefni sem ég tek undir að hefðu átt að vera framar í forgangsröðinni hér.

Fyrst að hv. þingmaður kom inn á jarðgöngin þá er tvennt sem mig langar til að spyrja hvort hv. þingmaður sé sammála mér um. Annars vegar sjáum við að ekki er verið að styðja nægilega vel við Herjólf. Hins vegar hef ég áhyggjur af því að við séum ekki að leggja til þessa litlu upphæð sem þarf fyrir rannsóknir á fyrsta áfanga, eins og var talað um, varðandi möguleg göng til Eyja. Þetta eru 60 milljónir sem þyrfti til þess að gera fyrstu rannsóknir á hafsbotni. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hún geti tekið undir mikilvægi þess að fara í þennan fyrsta hluta til að ýta af stað og styðja almennilega við þau mikilvægu verkefni sem hið nýja félag í Vestmannaeyjum ætlar að fara í, sem sagt jarðgöngin sjálf.