samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Það væri jákvætt og ég fagna því mjög ef ráðast á í þessar rannsóknir í fyrsta áfanga sem tengjast jarðgöngum. Þó að niðurstaðan verði sú að jarðgöng séu ekki fýsileg þá eru allar rannsóknir sem snúa að hafsbotninum mikilvægar og nýtast í öðrum auðlindatilgangi. Það er fjárfesting að fara í þetta verkefni og það er vel. Hv. þingmaður nefnir hvernig umferð hefur breyst í kjördæminu og mig langar bara til að setja það fram aðeins myndrænt. Ég man að þegar ég var í sveitinni þá vorum við með mjólkurbú sem var nálægt veginum og við lékum okkur að því að stöðva ferðamenn og bjóða þeim að koma inn og smakka mjólkina. Ég get alveg sagt að ef við myndum bjóða öllum þeim ferðamönnum sem fara fram hjá bænum í dag, ef það væri mjólkurframleiðsla, að smakka mjólkina, væri ekki seld mjólk. Slík er traffíkin alla daga. Umferðin hefur gjörbreyst að öllu leyti.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann hér í mínu seinna andsvari um raunhæfni áætlunarinnar. Það er talað um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Þá erum við að tala um næstu fimm ár sem eru þá fjármálaáætlun en auðvitað eru það fjárlög hvers tíma sem ráða því hvort hægt er að fara í fjárfestingar. Ég spyr hv. þingmann hvort hún sé sammála mér í því að draga megi í efa hvort áætlunin sé raunhæf í dag miðað við hækkun verðbólgu, miðað við aukna óvissu á alþjóðamörkuðum, miðað við það að ríkisstjórnin ætlar að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári og það eru bara örfáir mánuðir í að leggja þurfi slíkt fram. Erum við að tala um að það þurfi jafnvel að bregðast við og endurskoða eitthvað? Er raunhæft að vera að leggja þetta fram með þessum hætti?