157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:37]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Nú fer þessari umræðu að ljúka og samgönguáætlun gengur til nefndar. Mig langar að varpa örlitlu ljósi á stöðu Norðausturkjördæmis í þessari samgönguáætlun og stikla á stóru yfir verkefni sem ýmist eru ekki á dagskrá eða er frestað. Það kann að vera að þetta sé ekki góð ræðumennska, frú forseti, að fara í slíka upptalningu en hún sýnir þó ágætlega myndrænt hver staðan er í Norðausturkjördæmi næstu árin.

Af 15 einbreiðum brúm sem stefnt er að að eyða úr samgöngukerfinu okkar eru 12 í Norðausturkjördæmi. Fara á í framkvæmdir við tvær, önnur er reyndar brú sem var í raun og veru komin til framkvæmda og ein er ný. Vegurinn um Svarfaðardal er nánast ónýtur. Vegurinn um Skíðadal illa farinn. Vegkaflinn milli Þelamerkur og Akureyrar frestast. Bárðardalsvegur vestari, sýndarmennskuframlag, 3 km. Útkinn ekki nefnd. Þjóðvegur 85, um Aðaldalshraun, ekki nefndur. Jökulsárbrýrnar, frestað. Lagarfljótsbrú við Egilsstaði frestað. Suðurfjarðarvegi frestað. Öxi frestað, eins sorglegt og það er því þar eru tækifærin gríðarleg til vegstyttinga og líklega hvergi á landinu hægt að stytta vegalengd milli þéttbýliskjarna innan sama sveitarfélags fyrir eins lítið fé og með framkvæmd á eins fáum kílómetrum. Hún var tilbúin til útboðs og ég veit að ráðherra er meðvitaður um þingsályktunartillögu sem þegar hefur verið flutt um að flýta þeirri framkvæmd. Þetta eru skilaboð ríkisstjórnarinnar til íbúa í Norðausturkjördæmi. Flóknara er það ekki. Þetta eru kaldar kveðjur, frú forseti.

Mig langar að ljúka máli mínu hér á að búa til örlitla myndlíkingu: Ef þessi fjármálaáætlun væri lestuð um borð í flutningabíl væri hún svo afturþung að hann tyllti ekki í framhjólin.