staða skólakerfisins og áform ráðherra.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt síðara andsvar. Ég er náttúrlega búin að vera hér á Alþingi Íslendinga í tíu ár. Nei, fyrirgefið, ég stofnaði þennan flokk fyrir tíu árum og er búin að vera hér í tæp níu ár. Það hefur því ekki farið fram hjá neinum sem hefur sinnt hér þingstörfum hvernig menntakerfið okkar hefur í raun verið á fallandi fæti. Það hefur algjörlega legið fyrir, og hér hef ég staðið ítrekað í þessum ræðustóli og einmitt fjargviðrast yfir því að ekki skuli hafa verið gripið í handbremsuna á þeirri ófremdarleið sem við höfum verið á varðandi börnin okkar og að við skyldum ekki snúa af þeim vegi. Ég er því þakklát fyrir það að fá þetta í fangið. Ég mun leggja mig alla fram og ég efast ekki um að ég standi undir verkefninu. Það borgar sig að koma inn einmitt með þessu trukki eins og ég hef gert vegna þess að ég vil setja málaflokkinn almennilega á dagskrá. Ég vil að allir landsmenn geri sér grein fyrir alvarleika málsins og hvernig við ætlum að laga það. (Forseti hringir.) Ég óska bara eftir stuðningi og áframhaldandi góðum vilja (Forseti hringir.) stjórnarandstöðunnar sem hefur lýst því yfir bæði í orði og verki að við erum öll að róa (Forseti hringir.) í þessa átt fyrir börn.