aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Frú forseti. Ég þakka fyrir góða fyrirspurn hjá hv. þingmanni sem í rauninni setur á mig fjórða hattinn. Það var nú gert mikið grín að því að ég skyldi vera ráðherra með þrjá hatta en nú er ég eiginlega komin með hatt fjármálaráðherrans líka í augnablikinu. En það liggur fyrir að ríkissjóðurinn okkar stendur vel. Hann stendur vel að því leyti til að við munum ná jafnvægi strax á árinu 2027, ári fyrr en fráfarandi ríkisstjórn gerði ráð fyrir. Þá munum við skila hallalausum fjárlögum og það hefur í rauninni ekkert breyst. En ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns. Það er í rauninni sárara en tárum taki að við skulum ekki ná betur að berja niður þessa verðbólgu. Hún er þrautseig, mun þrautseigari en við ímynduðum okkur nokkurn tímann og því miður erum við að ganga í gegnum alls konar áskoranir og hv. þingmaður veit vel um það óöryggi sem er allt í kringum okkur þessa dagana á erlendri grund og í alþjóðasamfélaginu. Þetta hefur allt áhrif á okkur og það veit hv. þingmaður vel. Við getum í rauninni ekki annað en tekið í fangið þau verkefni sem okkur berast og munum gera það auðvitað. En ég er enn þeirrar skoðunar, eins og hv. þingmaður nefnir, að húsnæðisliðurinn eigi ekki að vera inni í mælingu vísitölunnar, ég er enn þá þar. En ég er bara einn þriðji af ríkisstjórninni okkar og það er sameiginleg ákvörðun að hlutirnir gangi fyrir sig eins og þeir eru að gera í dag og það sem ég held að sé algjört grundvallaratriði er að okkur gengur vel og við vinnum vel saman og líður vel saman þannig að ég hef engar áhyggjur af því. En margt af því sem hv. þingmaður talar um hér á algjörlega 100% við rök að styðjast.