hækkun á gjaldskrám Veitna.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað ekki þannig að þessi gjaldahækkun Veitna renni beint inn í rekstur borgarkerfisins. Það virkar ekki þannig. Þetta er hins vegar arður sem skilar sér þá til móðurfélagsins. Svo er full ástæða til að taka umræðuna um arðgreiðslustefnu Orkuveitu Reykjavíkur og er kannski eðlilegast að beina því til eigendanna.
Það er auðvitað rukkaður hitaveituskattur í dag. Það er mjög skýrt ákvæði í lögum um slíkan skatt og við niðurgreiðum húshitunarkostnað með sérstöku jöfnunarkerfi. Það kerfi er til sérstakrar skoðunar núna, en eins og ríkisstjórnin hefur einsett sér líka ætlum við að jafna dreifikostnað raforku um allt land. Við stigum mikilvægt skref núna nýlega með því að fella niður jöfnunargjald, sem er tekið af kynntum veitum, sem skilar sér þá í lægri kostnaði (Forseti hringir.) þegar kemur að húshitun víða um land. Þetta er því allt í ágætum farvegi (Forseti hringir.) og ég vil þakka hv. þingmanni aftur fyrir áhugann á þessum málum.