157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:33]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Undanfarna daga hefur skapast óvenjuleg og grafalvarleg staða í alþjóðamálum sem á sér fá ef nokkur fordæmi í stjórnmálasögunni. Jafnframt glímum við hér heima við alvarlega stöðu í efnahagsmálum, háa vexti og verðbólgu. Einmitt þess vegna skiptir svo miklu máli að ríkisstjórnin sýni festu og bæti ekki enn frekar á þá óvissu sem uppi hefur verið. Við þurfum að tala skýrt og við þurfum að sýna samstöðu hér heima og við eigum að fjalla um mál sem kljúfa ekki þjóðina. Í ljósi þessa vil ég spyrja hæstv. ráðherra í alvöru hvort rétt sé að rjúka af stað og hefja aðlögun að Evrópusambandinu, leggja út í vegferð sem er augljóst að muni kljúfa samstöðu íslensku þjóðarinnar, einmitt þegar við eigum að leggja áherslu á mál sem sameina okkur. Þetta snýst ekki um að treysta þjóðinni. Vitaskuld treysta allir kjörnir fulltrúar hér inni þjóðinni og við búum sem betur fer í lýðræðisríki. En er ekki forgangsröðunin röng hjá ríkisstjórninni? Eigum við ekki frekar að einbeita okkur að brýnni málefnum (Forseti hringir.) sem blasa við eins og að ná niður verðbólgu og vöxtum?