157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:36]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú ánægjulegt að vita að hæstv. utanríkisráðherra virðist hafa verið á lífi þegar Ísland gekk í NATO því að hún var svo stolt á því augnabliki, það kom fram hér áðan, eða ég skildi hæstv. ráðherra þannig. Hæstv. ráðherra talar hér ítrekað um að ríkisstjórnin sé í tiltekt, að ríkisstjórnin sé að taka erfiðar ákvarðanir eins og enginn hafi nokkurn tíma verið í tiltekt og enginn hafi tekið erfiða ákvörðun í þessu landi áður. Þetta er allt saman algjört rugl vegna þess að ríkisstjórnin ræður einfaldlega ekki við verkefnið sem hún tók að sér. Ríkisstjórnin, og sérstaklega Samfylkingin, fór af stað í kosningum 2024 og talaði ekki um inngöngu í Evrópusambandið, talaði ekki um það. Forsætisráðherra var meira að segja búin að segja: Við ætlum að leggja áherslu á málin heima fyrir, þau brýnu mál að ná niður verðbólgu og vöxtum. En ríkisstjórnin ræður ekki við verkefnið. Verðbólgan lækkar ekki, vextir lækka ekki og tiltektin er 143 milljarða útgjaldaauki á milli ára. (Forseti hringir.) Það er tiltektin sem utanríkisráðherra er svo stolt af.