157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:39]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eftir fyrri hluta ræðu hæstv. ráðherra þá hugsaði ég: Ég er að fara að koma hérna upp til að hrósa ráðherranum fyrir einstaklega góða ræðu. Nú er hæstv. ráðherra loksins búinn að átta sig á stöðu mála og skilur mikilvægi þess að við stöndum saman á þessum tíma. En nei, virðulegur forseti. Hér kom gamaldags ræða í lokin sem mætti halda að hafi verið haldin á Já Ísland, sem eru ein af þessum samtökum sem eru búin að vera lifandi mjög lengi en hafa kannski dáið, um það að nú sé loksins kominn tími til að yfirgefa EES-samninginn, því að það er skýr stefna hjá hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra er sá stjórnmálamaður sem talar niður EES-samninginn á hverjum einasta degi. Og nú skal nota tækifærið, þegar Ísland ætti að standa saman, þegar íslenskir stjórnmálamenn ættu að standa saman í að verja hagsmuni Íslands, og kljúfa þjóðina. Því að hæstv. ráðherra veit að með því að svíkja það kosningaloforð, (Forseti hringir.) sem var gefið fyrir kosningar af hæstv. forsætisráðherra, og gera þetta mál að deilumáli er hæstv. ráðherra að kljúfa þjóðina. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvernig dettur hæstv. ráðherra í hug á þessum tímapunkti að fara í það að kljúfa íslenska þjóð?