Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Til þess að undirstrika það þá hef ég aldrei talað niður EES-samninginn (Gripið fram í.)og mun aldrei gera það. Ég hef verið að vinna að því að hafa samninginn virkan. Það eru hins vegar aðrir en ég sem hafa talað hann niður hér í þessum sal. (Gripið fram í.) Það eru aðrir, m.a. þingmenn. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur komið hingað upp og sagt að nú þurfum við, abbabbabb, að staldra við, hvort sem það er við bókun 35 eða annað. Við þurfum að passa upp á það að vera ekki að innleiða gerðir. Hvað þýðir það? Þýðir það að standa ekki við EES-samninginn? (Gripið fram í.) Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur komið hingað upp í þessa pontu og dregið tennurnar úr EES-samningnum. Það mun þessi ríkisstjórn ekki gera. Við erum í góðum samskiptum við atvinnulífið. Við munum halda áfram að tala við atvinnulífið og byggja upp okkar samstarf í gegnum EES-samninginn nú sem fyrr. Það hafa aldrei jafn margar gerðir verið uppfylltar og núna í lok síðasta árs og verið staðið jafn fast með EES-samningnum eins og einmitt undir þessari ríkisstjórn, þannig að því sé haldið til haga. En þjóðin er eðlilega að spyrja sig undir núverandi aðstæðum. Þjóðin þarf að fá að vita meira. Hún vill ekki fá einhliða upplýsingar og jafnvel einhverja upplýsingaóreiðu eða falsfréttir, (Forseti hringir.) eins og iðulega er reynt að setja hér á borð, m.a. úr þessum ræðustól.(Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Þjóðin á rétt á að vita. (Forseti hringir.) Ég treysti þjóðinni og það er ágætt að fá það ítrekað fram að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson treystir ekki þjóðinni.