157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:45]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir ræðuna hérna áðan. Við eigum að geta rætt um hlutina, m.a. það sem við teljum að betur megi fara, án aldurs- eða reynslufordóma. Það að tala niður til fólks segir meira um þann sem þannig tjáir sig en þann sem fyrir því verður. Hér vita sennilega flestir hvað ég er að tala um.

En síðan er það þetta: Í þeirri öldu sem stigin er í alþjóðamálum er virkilega mikilvægt að vanda sig og vera skynsamur. Það er afskaplega mikilvægt að allir haldi ró sinni og þá er ég einnig að tala um hæstv. utanríkisráðherra. Það þarf að tala varlega og spara gífuryrðin. Ég vísa til ummæla fyrrverandi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, í Silfrinu í vikunni þar sem hann lét þau orð falla að fyrir hvern einasta fund í Brussel eigum við að taka tvo í Washington. Ég tel þetta vera heilræði og spyr hæstv. utanríkisráðherra hvort hún ætli ekki að fara að þessum góðu ráðum fyrrverandi hæstv. forseta Íslands.