Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svörin. Það er óskaplega einkennilegt að heyra þessi svör, að það sé óskað eftir fundum og við fáum ekki fundi en það eru allir aðrir sem fá fundi með Bandaríkjamönnum heldur en íslensk stjórnvöld. Það er stórfurðulegt og maður hlýtur að spyrja sig hvers vegna það er. Við erum í NATO, við erum með öflugan varnarsamning við Bandaríkin og ég vara við því að grafa undan því mikilvæga samstarfi með óvarlegum yfirlýsingum eða aðgerðum. Ábyrgð þeirra sem slíkt gera er mikil. Við skulum hafa það hugfast. Ég hvet utanríkisráðherra til að leggja enn meira á sig. Það er stórfurðulegt að Ísland og íslenskir ráðamenn skuli ekki fá fundi með ráðamönnum í Bandaríkjunum þegar allir aðrir fá fundi. Þarna þarf að gera betur.