Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Það er að vísu einhvers konar heimsmet í pólitík hjá hæstv. utanríkisráðherra, þegar við erum hér að ræða mál sem ætti að vera auðvelt að fá fulla samstöðu þingheims um, að kveikja í þingsalnum. Hæstv. ráðherra getur ekki borið fyrir sig reynsluleysi en núna á þessum tímapunkti þegar allir flokkar, myndi ég ætla, eru sammála um að gæta hagsmuna Íslands hélt ég að þessi umræða myndi ganga út á það hvernig við ætluðum að stilla saman strengi. Þá er það hæstv. ráðherra sem kveikir í öllu. Hæstv. ráðherra þarf að gera upp við sig hvort hæstv. ráðherra ætli að koma hér og biðja okkur afsökunar á því.
Ég sem hér stend stóð fyrir Grænlandsskýrslunni og meiri samskiptum við Grænland en nokkurn tímann hefur verið gert áður. Ég má samt sitja undir því eins og allir aðrir stjórnarandstöðuþingmenn að hæstv. ráðherra kemur með dylgjur um það að hv. þingmenn styðji ekki Grænland. Nú er komið að þessum tímapunkti: (Forseti hringir.) Hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera? Það sem hæstv. ráðherra á að gera og er rétt að gera er að biðjast afsökunar.