157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:07]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Hann er sannarlega jákvæður þessi nýfengni áhugi fjölmargra á Grænlandi. Hann er svo sannarlega ekki nýr af nálinni hjá okkur Sjálfstæðismönnum eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hafa m.a. komið inn á og sömuleiðis hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir. Það vorum við Sjálfstæðismenn sem létum vinna í utanríkisráðherratíð okkar sérstaka skýrslu um málefni Grænlands og væri gaman að heyra frá hæstv. ráðherra hvað hún hefur verið að gera með þær tillögur okkar, 100 tillögur að stórbættum samskiptum og samvinnu við Grænlendinga. Ég hélt kannski að ég gæti sparað mér ómakið að koma hér upp eftir að ég sá að hæstv. ráðherra hafði beðið um orðið. En það var ekki svo. Ég myndi vilja óska þess að hún kæmi hér aftur upp og reyndi að róa hv. þingmenn. Það er algjörlega nýtt fyrir mér sem hefur verið viðloðandi utanríkismál, bæði sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sem formaður utanríkismálanefndar og sit í utanríkismálanefnd, hvernig er verið að reyna að tvístra þinginu í utanríkismálum. Það hefur verið, meira að segja þegar hér voru átta flokkar, næstum því alger samstaða hér á þinginu í utanríkismálum. En ríkisstjórnin og hæstv. utanríkisráðherra er að takast eða eru að reyna að búa til einhverja gjá, sífellt að tala um stjórn og stjórnarandstöðu í tengslum við öryggismál. Þetta er algerlega nýr talsmáti hér á þingi. (Forseti hringir.) Ég vek athygli þingheims og þjóðarinnar á þessum nýja takti nýrrar ríkisstjórnar.