Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Herra forseti. Skýringar hæstv. ráðherra hjálpa nú ekki til nema síður sé. Nú skýrir hæstv. ráðherra það að hann hafi haft miklar efasemdir varðandi það að einhverjir þingmenn hér hafi hugsanlega sagt eitthvað í þá veru að menn ættu að halda ró sinni í þeirri stöðu sem uppi hefur verið varðandi Grænland. Málflutningur hv. þingmanna Miðflokksins hefur að vísu verið jú í þá áttina að það sé betra að halda ró sinni og beita Íslandi á þann hátt sem Ísland nýtist best við þessar aðstæður. Málflutningur hv. þingmanna Miðflokksins hefur reyndar verið algerlega í samræmi við málflutning til að mynda Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO. Telur hæstv. ráðherra að betri árangur hefði náðst í málinu ef menn hefðu öskrað meira, beitt meiri hótunum, ausið svívirðingum yfir þá sem þeir væru ósáttir við? Telur hæstv. utanríkisráðherra að það hefði aukið líkurnar á farsælli niðurstöðu?