Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Herra forseti. Það er ljótt að ljúga. Þetta segjum við við börnin okkar. Það er ljótt að ljúga. Hér kom hæstv. utanríkisráðherra upp áðan og fór með ósannindi um stjórnarandstöðuna, fór með ósannindi um þingmenn Miðflokksins. Þetta er með ólíkindum. Ráðherra kemur hér upp og segir að hér séu þingmenn sem styðji ekki Grænland í sinni baráttu. Það er enginn hér á þingi sem ekki styður Grænland, bara þannig að það sé sagt. Þetta er ómaklegt. Ég krefst þess að hæstv. utanríkisráðherra komi hér upp og biðjist afsökunar á þessum ummælum sínum og dragi þau til baka. Hún kom upp áðan. Ég heyrði enga afsökunarbeiðni og ég krefst þess að hún komi hér upp aftur og biðji okkur afsökunar sem undir þessu sitjum.