Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Hroki og hleypidómar hæstv. utanríkisráðherra eru að ná nýjum hæðum núna. Þetta er ekkert annað en lýðskrum. Það er ekkert annað en lýðskrum að koma hér upp og dylgja um það að hér sé ekki þingheimur sameinaður um það að standa með Grænlendingum. Þetta er lýðskrum á öðru stigi en við höfum séð áður og það er mjög alvarlegt í ljósi þess ástands sem er í umhverfinu í kringum okkur að umræðan hér í þingsalnum skuli vera komin á það stig. Það skrifast bara á hæstv. utanríkisráðherra. Hæstv. utanríkisráðherra: Hafðu sóma í að koma hér upp og biðjast afsökunar á þessum orðum og við höldum svo áfram að ræða um þessi alvarlegu mál.