Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Ég spyr nú vegna þess að það voru ýmsir starfsmenn Miðflokksins sem gerðu þessu viðtali við Ólaf Ragnar Grímsson hátt undir höfði og gáfu til kynna að stjórnvöld ættu að leggja við hlustir. Ég skildi boðskapinn þannig að við ættum að liggja lágt og ekki styggja neinn. Mín skoðun er sú að yfirlýsingar eins og þessar skipti máli. Þar sem ég hef komið víða við þá hef ég skynjað að fólk kann almennt að meta það þegar íslensk stjórnvöld styðja við sjálfsákvörðunarrétt grænlensku þjóðarinnar og fullveldi konungsríkisins Danmerkur. En mig langar mig kannski líka, af því að hv. þingmaður er vel læs og mjög fróður um bandarísk stjórnmál, að velta öðru fyrir mér. Hv. þingmaður hefur væntanlega kynnt sér nýja þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna og gerir ýmislegt sem fram kemur í þeirri stefnu að sínu, m.a. gagnrýni á evrópska þjóðaröryggisstefnu. En ég velti fyrir mér: Ef sú heimsmynd sem dregin er fram í þeirri þjóðaröryggisstefnu verður að veruleika, ef henni verður hrundið í framkvæmd, þá finnst mér ýmislegt vera þar sem er varhugavert fyrir okkur Íslendinga. Það er mikil áhersla á tolla, enda hafa núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum lagt á okkur toll sem við, að mínu mati, eigum ekki skilið. Þarna er lögð áhersla á meiri tolla. Þarna er lögð áhersla á landvinninga og yfirráð á norðurslóðum. Ef hv. þingmaður les nýja þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna telur hann að þar sé björt framtíð með hliðsjón af íslenskum hagsmunum eða að þar séu hlutir sem við ættum að reyna að varast og sporna við?