157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:51]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér munnlega skýrslu um stöðu alþjóðamála og eins og kannski þeir sem hafa fylgst með umræðunni sáu þá fór hún aðeins út í skurð um tíma. Ég ætla að reyna að halda mig við umræðu um stöðu alþjóðamála og ég ætla að leyfa mér að gera eins og margir aðrir á undanförnum dögum og vikum að reyna að horfa aðeins aftur í tímann og reyna að átta sig á því hvað er að gerast til að reyna að skilja hvað hugsanlega gæti gerst í framhaldinu og hvernig við eigum að bregðast við. Mannkynssagan virðist hafa þá tilhneigingu, saga mannsins, að endurtaka sig aftur og aftur. Þegar allir eru búnir að gleyma því sem einu sinni gerðist þá byrja slíkir atburðir að gerast aftur. Þetta er saga hruns á fjármálamarkaði sem gerist með reglubundnum hætti þegar allir eru búnir að gleyma hvernig það verður til, að búa til bólur, þá verða til bólur, þær springa og það hrynur allt. Því miður er þetta svona líka í sögunni ef við horfum til alla vega síðustu alda. Við getum alveg sagt að fram til loka heimsstyrjaldarinnar síðari, á öldunum þar á undan, hafi ríkt það vald að sá sterki réði og hann fór fram með því valdi sem hann hafði, hvort sem það var efnahagslegt, hernaðarlegt eða landfræðilegt með einhverjum hætti. Þetta er saga Evrópu þar sem var meira og minna stríð milli aðila þar sem menn voru að sækja ný lönd, það var ásókn í landamæri, að ráðast yfir landamæri nágranna síns til þess að sækja sér auðlindir, auðæfi, fólk.

Við á Íslandi höfum verið að kljást við ólíkar aðstæður í gegnum þessa tíma frá því að sjálfstæðisbaráttan hófst raunverulega á miðri 19. öld, 1845, eitthvað slíkt. Við náðum árangri með Jóni Sigurðssyni, náðum árangri með fyrstu stjórnarskránni. Við erum nú með styttu af dönskum kóngi fyrir utan Stjórnarráðið, 1874, sem sýnir það. Fyrsti ráðherrann 1904, fullveldið 1918 og síðan fullt sjálfstæði þegar við í kjölfar stríðsins, þegar Danmörk var hernumin, sögðum okkur frá Dönum og fengum fullt sjálfstæði sem þjóð. Áður en til þess tíma kom þá þurftum við í þeim ólgusjó sem þá var — ekkert ósvipað kannski þeirri stöðu sem Grænlendingar eru í, sem eru á leið til sjálfstæðis, sem eru að reyna að verja sín landamæri, stöðunni sem þeir eru búnir að vera í núna, við vorum kannski í þeirri stöðu á þeim tíma í aðdraganda fyrri heimsstyrjaldar. Seinni heimsstyrjöldin kemur síðan og við erum orðin þessi fullvalda þjóð. Ég segi þetta bara vegna þess að við höfum verið á þessari vakt, Framsóknarflokkurinn er t.d. búinn að vera á vakt síðan 1916 og hefur þurft að kljást við ólíka tíma í alþjóðamálum og forystumenn hans í gegnum tíðina. Ég held að okkur hafi lánast vel þar sem við gerðum, okkur lánaðist vel að sigla í gegnum þann ólgusjó sem hér var á síðustu öld, í aðdraganda fyrri heimsstyrjaldarinnar, eftirköstum millistríðsáranna, í seinni heimsstyrjöldinni og síðan í kjölfarið á henni. Þá sögðu þjóðir heims, kannski fyrst og fremst Bandaríkin og Evrópuþjóðirnar, uppgefnar eftir stríð hver við aðra í gegnum aldirnar, að nú væri nóg komið. Með stuðningi annarra ríkja eins og Kanada og ríkja í Suðurálfu og annarra stærri ríkja þá búa menn sér til nýtt kerfi, Sameinuðu þjóðirnar, alþjóðareglur, alþjóðastofnanir. Þetta hefur gengið ágætlega í 80 ár. Meira að segja Evrópuríkin fóru að reyna að velta fyrir sér hvernig þau gætu komið í veg fyrir að þau færu í stríð hvert við annað. Til varð hvert bandalagið á fætur öðru, frá því að vera einhvers konar tollabandalag um járn og stál 1952, þróaðist 1957 og endaði í einhvers konar Evrópubandalagi 1967. Allt gert til þess að reyna að viðhalda friði og menn væru ekki að ásælast land nágranna síns.

Frá þessum tíma, frá þeim tíma þegar hinn stóri og freki gat með valdi og peningum valtað yfir nágranna sinn og gerði það alveg reglulega og frá tíma íhaldskerfis, auðvaldskerfis og stéttaskiptingar þar sem þeir sem áttu réðu og íhaldssemin réð, hefur þessi saga 80 ára, frá því að Ísland varð lýðveldi eftir stríðstímann, verið saga þess að við stefnum í átt að frjálslyndi, í átt að meira umburðarlyndi, við séum að stefna í átt að meiri skynsemi. Þegar þetta allt í einu hrynur, þegar kemur rof, þegar menn segja sem valdhafar: Nei, við ætlum ekki að virða alþjóðareglur. Nei, við þurfum ekki að nota alþjóðastofnanir sem hafa verið til í 20, 30, 40, 50, 60, allt að því 80 ár, af því við ætlum að búa til okkar eigin reglur sem henta okkar eigin hagsmunum, hvað gerum við þá?

Ég hlustaði á ræðu forsætisráðherra Kanada sem er formaður frjálslynda flokksins í Kanada, systurflokki Framsóknar, og mér fannst hann mæla vel. Ég er alveg viss um að menn muni núna á næstu dögum og vikum reyna að túlka hans orð með sínum hætti. Það mun ég gera að sjálfsögðu líka. Það sem ég las út úr því var að hann sem fulltrúi næststærsta ríkis heims að flatarmáli, milli stórs ríkis, segir að þessi ríki verði að tala saman, þau verði að vinna saman en við verðum, sem svona stór ríki, að fjárfesta innan lands til að geta staðið sjálf. Alþjóðavæðingin gekk of langt, sagði hann, las ég úr orðum hans. Alþjóðavæðingin gekk of langt. Við vorum orðin viðkvæm. Stórveldin þrjú, og það er ekki Evrópusambandið, það eru Rússar, Kínverjar og Bandaríkin, eru að skipta heiminum á milli sín í krafti valds, hervalds og efnahagslegs valds. Þá þurfum við hin að standa saman en við þurfum að byggja okkur upp innan lands til að við séum ekki svona viðkvæm fyrir því að stóru fyrirtækin, sem eru í þessum stórveldum, Bandaríkjunum, Kína, taki hér öll völd í heiminum og verði kóngarnir, verði það sem við sáum hér á öldum áður þegar stóri freki aðilinn gat vaðið yfir allt og alla í krafti valds og peninga. Það eru stóru fyrirtækin í heiminum að gera og þau eru í stóru ríkjunum, stórveldunum.

Þá verð ég að segja alveg eins og er að ég er stórkostlegur efasemdarmaður þess að Ísland eigi að segja: Við ætlum að velja að verða hluti af einhverju viðskiptabandalagi. Við gerðum það ekki fram að þessum tíma, meðan við vorum fullvalda frá 1918. Við reyndum að lifa af í heimi af því þetta gengur allt í hringi. Ég held að það sé mikilvægt að þjóðir heims standi upp og segi: Það gengur auðvitað ekki að eitthvert ríki, hvort sem það er Rússland, virði ekki landamæri Úkraínu eða hvort það eru Bandaríkin, bandamenn okkar innan NATO, sem ætla ekki að virða landamæri Grænlands. Ég held að það sé mikilvægt að við stöndum upp og segjum það hér á þinginu. Ég hélt að þessi umræða ætti að snúast um það. Ég ætla að leggja hér til að við gefum út þá yfirlýsingu hér á Alþingi, og við í Framsókn erum tilbúin að leggja fram slíka yfirlýsingu, að við á Alþingi Íslendinga styðjum Grænlendinga. Við styðjum fólkið í Grænlandi í baráttu þess við að verja sín landamæri, að verja sitt fullveldi, að verja sína vegferð til sjálfstæðis. Það er yfirlýsing sem við á þessu þingi, í þessari umræðu, ættum að gefa í dag. Það hélt ég að væri tilgangur þessarar umræðu en ekki að við færum að tala um að það væri akkúrat núna sem við ættum að fara að velja í hvaða blokk við ættum að fara.

Það eru þrjú stórveldi sem skipta á milli sín en það eru önnur að koma. Indland er að verða mjög stórt ríki. Suðaustur-Asía verður kannski það veldi framtíðarinnar sem við verðum að kljást við. Vonandi verður það ekki eins ásækið og Rússland hefur verið. Vonandi verður það ekki eins afturhaldssamt og Evrópusambandið hefur verið því að Evrópusambandið er sjálft að tapa. Það segja skýrslurnar, þeirra eigin skýrslur. Þegar við þurfum að fara að taka umræðuna um það hvort við eigum að ganga í Evrópusambandið, þá eigum við auðvitað að spyrja þeirrar spurningar, þ.e. hvort við viljum ganga í Evrópusambandið og taka rökræðu um það af hverju það sé gott í þessum heimi, í þessum aðstæðum — sem ég held að sé ekki rétt. Ég held að það sé rétt að við stöndum með okkur sjálfum, að við stöndum með þeim þjóðum sem við höfum mest samneyti við, sem eru Norðurlandaþjóðirnar, sem eru síðan nágrannar okkar, Grænlendingar, Færeyingar og við sjálf. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við stöndum þar og séum skýr í okkar málflutningi. Þess vegna held ég að það væri góður bragur á því ef við myndum sammælast um einhverja yfirlýsingu um að við styðjum Grænlendinga, út frá þessari umræðu hér í dag. Ég held að það væri góður bragur á því.

Ég held við þurfum að skoða miklu betur hvort við ætlum að fara að aðhyllast einhverja viðskiptablokk framtíðarinnar og lenda þá hugsanlega í því að vera í einni blokk og með allar hinar gegn okkur. Er það skynsamlegt? Á þessum punkti lífsins, í þessum ólgusjó heimsins, finnst mér það afskaplega óskynsamlegt.

Tölum um varnir Íslands. Lega Íslands hefur ekkert breyst. Hún er jafn hernaðarlega mikilvæg og hún hefur alltaf verið. Hún verður hins vegar mismikilvæg í áherslum stjórnmálamanna eftir því hverjir eru við völd á hverjum tíma og hvernig þeir haga sér. Þegar allir haga sér skynsamlega eins og menn gerðu í kjölfarið á því að kalda stríðinu lauk og múrinn féll og menn héldu þeir væru komnir í átt að meiri skynsemishyggju, meira umburðarlyndi og meira frjálslyndi, þá minnkaði vægið. Það hefur svo sannarlega sprottið upp aftur en legan hefur ekkert breyst. Við erum og verðum sá hluti sem Bandaríkin — sem er sterkasta herveldi í heimi og getur bara gert það sem því dettur í hug í krafti valdsins, því miður er það bara þannig. Þeir geta gert það sem þeim dettur í hug. Þeir munu alltaf verja Ísland af því það er hluti af þeirra eigin vörnum. Eigum við þá að fara að gera eitthvað allt annað til að reyna að tryggja varnir okkar? Legan hefur ekkert breyst. Eigum við að fara að byggja varnir okkar á Evrópu, sem er sannarlega að reyna að hysja upp um sig buxurnar og gera ýmislegt? Ég held að hún þurfi að gera það og það sé gott. En aftur: Eru allir búnir að gleyma hvað gerðist fyrir 80 árum? Hverjir verða næstu valdamenn í sumum af stærstu ríkjum Evrópu? Eru það aðilar sem við erum sammála um að séu skynsemishyggjufólk eða fólk sem hugsanlega hugsar svolítið líkt og sumir af þeim sem ganga hvað lengst fram í umræðunni í heiminum í dag? Viljum við verða þeirra liðsmenn? Ég segi nei. Ég held að við eigum að bíða. Við eigum að reyna að þrauka í gegnum þennan tíma sem er í gangi og treysta á það sem er skynsamlegt, sem er samstarf við sem flestar þjóðir, samtal við sem flestar þjóðir og reyna að komast þannig af.

En í dag held ég að það væri góður bragur á því að í þessari umræðu myndum við gefa út þá yfirlýsingu að við styddum Grænlendinga í einu og öllu í þeirra vegferð.