Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og formanni Framsóknarflokksins fyrir þessa um margt prýðilegu ræðu og að fara yfir mannkynssöguna. Ég deili með honum þeirri skoðun að það var gæfa Evrópu og Bandaríkjanna að standa saman eftir seinni heimsstyrjöldina og móta þessar grundvallarstoðir og þessa sáttmála sem hafa verið okkur litlu og meðalstóru þjóðunum ákveðið haldreipi, Sameinuðu þjóðirnar og NATO. Þær fóru síðan margar hverjar líka í Evrópusambandið af því að það var svona tvöföld trygging, af því að við sjáum líka að friður fæst með efnahag, efnahagslegu öryggi og lífsgæðum sem því fylgja. Þá eru meiri líkur á að það verði friður á því svæði og þess vegna var m.a. Evrópusambandið myndað, líka fyrir tilstuðlan Bandaríkjanna.
Ég hef verið að ræða það líka að heimurinn er að skiptast í þessi lénsherraveldi og það eru ákveðin ríki sem vilja það. Það er Asía, Kína og Indland og svo tala menn um Rússland og Bandaríkin. Þetta er að verða svolítið myndin sem er að teiknast upp. Við erum með olígarka, bæði í Rússlandi en líka þá sem hv. þingmaður nefndi og eru forsvarsmenn þessara stóru fyrirtækjasamstæða og við erum líka með yfirlýsingar Musks sem vill bara tortíma Evrópusambandinu. Þá spyr maður sig: Bíddu, af hverju eru allir þessir aðilar á móti Evrópusambandinu og að reyna að tala það niður? Ég vil vel að merkja draga það fram að Draghi hefur einmitt sagt að það séu svo mikil tækifæri fyrir Evrópusambandið. Draghi-skýrslan var gagnrýnin en hún var uppbyggileg gagnrýni af því að hann segir einmitt að samstaða Evrópu muni leiða til þess að það verði aukinn friður og frelsi. Það sem ég er hins vegar að segja varðandi þessa andúð á Evrópusambandinu er að þar er þó eftir veikum mætti verið að tala um þessi grundvallarprinsipp sem við aðhyllumst, lýðræði og frelsi. Þar er ákveðin skjaldborg slegin um neytendur og samkeppnishæfi og þar með slegið svolítið á puttana á stóru samsteypunum. Það er ekki síst þess vegna sem þær hafa verið pirraðar og reiðar yfir því að það skuli vera eitthvert afl sem er að reyna að halda aftur af þeim.
Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann, af því aðhaldið á samsteypurnar kemur ekki heiman frá Bandaríkjunum eða annars staðar frá: Telur hann ekki mikilvægt að þeim sé engu að síður veitt aðhald einhvers staðar í veröldinni?