157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:34]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Hæstv. ráðherra kemur upp og segir okkur sammála um að við eigum að rækta samstarf til ólíkra átta en af hverju endurspeglast sú afstaða hæstv. ráðherra þá ekki í verkum hennar? Af hverju gerir hún það ekki? Ég hef vakið máls á þessu ítrekað. Ég hef skrifað um þetta og ég hef vakið máls á þessu í utanríkismálanefnd. Ég hef tekið þetta upp hér í þinginu og nú hef ég lagt fram formlega fyrirspurn. Sagði hæstv. ráðherra ekki áðan, ef ég fer rétt með, að símanum væri ekki svarað í Bandaríkjunum? Ég vil benda á að það er þá bara gjörbreytt staða sem við þurfum að ræða hér af fullri alvöru, staða sem aðrir ráðherrar á Norðurlöndunum glíma ekki við. Við hljótum að vilja fá svör við því af hverju þessi breytta staða stafar af því að ég hef grun um að hún stafi af breyttri forgangsröðun sem ég hef gagnrýnt harðlega.

Varðandi það að ég hafi ekki gagnrýnt hér framgöngu vinaþjóðar okkar þá lýsti ég því bara margsinnis yfir í minni ræðu að ég harmaði það hvernig vinaþjóðir okkar hefðu brugðist við og tiltók þar sérstaklega Evrópusambandið og Bandaríkin, bæði varðandi orðræðu og framgöngu. Gott að hæstv. ráðherra hefur getað nýtt sér viðskiptasamráðið sem við komum á fót við Bandaríkin. Það hefur þó því miður a.m.k. ekki skilað neinum árangri og því miður hefur hæstv. ráðherra ekki séð sér fært að fara sjálf og reyna að liðka fyrir í þessum samskiptum og samstarfi sem hún lýsir sjálf í pontu hér að sé í einhverjum lamasessi, ástand sem ég bara aftur kannast ekki við, sama hver var þá við stjórnvölinn í Bandaríkjunum.

Hæstv. ráðherra kemur hér upp með ótrúlegum hætti og spyr mig að því hvort mér sé alvara í því að gæta hagsmuna okkar í EES-samstarfinu. Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra bara til baka: Er henni alvara að koma hér upp trekk í trekk, kalla aðra upp í pontu (Forseti hringir.) og væna þá um afstöðu þeirra til EES-samningsins þegar það liggur fyrir að hennar helsta markmið, í rauninni bara stærsta pólitíska sannfæring (Forseti hringir.) og hagsmunamál, er að koma okkur út úr EES-samstarfinu? Að við hættum í EES-samstarfinu? Getur hún bara ekki (Forseti hringir.) svarað því til hvort henni sé alvara?