157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:39]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vek athygli þingheims, og þeirra sem eru að hlusta, á því og vona bara að eftir því verði tekið, að hæstv. utanríkisráðherra Íslands lýsir því hér yfir í pontu að það sé ásættanleg niðurstaða fyrir Ísland að Evrópusambandið hafi beitt okkur þessum tollum. Ásættanleg niðurstaða, þetta sagði hæstv. utanríkisráðherra orðrétt hér í pontu rétt í þessu. Eftir þessu verður tekið. Þetta er sami hæstv. utanríkisráðherra og biður um umboð frá íslensku þjóðinni til að fara í aðlögunarviðræður við sama bandalag. Ég vek athygli á þessu. Já, ég reiddist þessum ummælum. Hæstv. utanríkisráðherra er einmitt með framgöngu sinni, langar mig að segja, og þessari ESB vegferð að tefla okkur í þá hættu að við lendum á milli skips og bryggju. Ég vara við því.

Varðandi tvíhliða samskipti þá fór ég vandlega yfir það í ræðu minni; ég set mig að sjálfsögðu ekki upp á móti því enda er það nákvæmlega það sama og við Sjálfstæðismenn gerðum í okkar síðustu stjórnartíð í utanríkisráðuneytinu. Við gerðum m.a. tvíhliða yfirlýsingar við Noreg, Bretland og Svíþjóð.