Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir prýðisgóða yfirferð og ræðu um afrekaskrá Sjálfstæðisflokksins í tíð fyrri ríkisstjórnar. Ég get tekið undir ýmislegt sem fram kom í máli hv. þingmanns. Ég get þó ekki látið hjá líða að minnast sömuleiðis á hina ágætu Draghi-skýrslu sem fulltrúum Sjálfstæðisflokksins verður mjög tíðrætt um, til að gefa Evrópusambandinu, sem öflugu markaðssvæði sem lítur inn á við og hefur til þess lýðræðislega burði, algjöra falleinkunn; og finnst það mikill áfellisdómur yfir þeirri bragarbót sem sérhvert ríki sem ætlar að axla ábyrgð á eigin samkeppnishæfni getur gefið sér. Ég má til með að koma því á framfæri hér að Draghi-skýrslan er ekki gallalaus skýrsla en skilaboðin eiga þó alveg að fá að standa. Sérhvert svæði þarf reglulega að líta inn á við og gera umbætur þegar þess þarf. Svona skýrsla hefði ekki fengið að koma út í Alþýðulýðveldinu Kína og ég ætla að leyfa mér að segja það og ætla að leyfa mér að fullyrða að svona skýrsla kæmi ekki út af hálfu Bandaríkjastjórnar eins og hún lítur út núna.
Ég má til með að spyrja hv. þingmann: Þessi skýrsla fjallar um sameiginlega iðnaðarstefnu Evrópusambandsins. Hún fjallar um samkeppnishæfni, hún fjallar um tæknilegt fullveldi Evrópusambandsins, gagnavernd og miðlun, vistun gagna. Málefni innri markaðarins — ég vil taka fram að Sjálfstæðisflokkurinn var ekki óduglegur við að gullhúða slíka löggjöf sem barst frá Evrópusambandinu á sama tíma, sem hefur svo sannarlega komið niður á samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Ef Evrópusambandið er slíkt feigðarflan, eins og hv. þingmaður nefndi, til hvers erum við þá að standa vörð um íslenska hagsmunagæslu innan EES? Þetta varðar málefni innri markaðarins sem hafa áhrif á okkur. Af hverju skiptir þá EES-samningurinn svona ofsalega miklu máli?