Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér varð reyndar ekki mjög tíðrætt um nefnda Draghi-skýrslu, ég held að hún hafi fengið sex orð í 1.800 orða ræðu minni. Ég vildi einmitt ekki einblína á þessa bágu efnahagslegu samkeppnisstöðu Evrópusambandsins. Mér finnst hv. þingmaður sannarlega setja rána alveg við gólfið með samanburðinum við Kína en mig langar til að leiðrétta fullyrðingu hv. þingmanns varðandi sambærilega skýrslugerð í Bandaríkjunum; eftir því sem ég best veit þá er slík skýrslugerð mjög algeng þar. Varðandi gullhúðunina þá þarf hv. þingmaður ekkert að fara yfir það með mér, gullhúðun hefur verið eitt af mínum uppáhaldsálitaefnum og umfjöllunarefnum á Alþingi. Við Sjálfstæðismenn létum m.a. gera skýrslu á síðasta kjörtímabili og réðumst í aðgerðir til að vinda ofan af gullhúðun sem er góð og þörf vinna; við vorum orðin allt of blind fyrir þessu, þingheimur allur, við vöktum á því athygli. Ég hef sömuleiðis ítrekað lagt fram frumvarp til þess að skerpa á reglum sem við höfum sett okkur varðandi gullhúðun og ég vona að núverandi hæstv. ríkisstjórn haldi þeirri þörfu vinnu áfram.
Ég náði ekki alveg niðurlaginu frá hv. þingmanni en mér heyrðist að hún væri að spyrja mig að því af hverju ég styddi EES-samstarfið en ekki Evrópusambandið, ég skildi niðurlagið einhvern veginn þannig. Mér finnst það bara blasa við. Með þátttöku okkar í EES-samstarfinu höfum við aðgang að innri markaðnum. Við höfum aðgang að öllu því besta sem Evrópusambandið, með sínum kostum og göllum, hefur upp á að bjóða. Við getum auðvitað unnið heimavinnuna okkar betur í þeim efnum, m.a. varðandi innleiðinguna hér á landi, en við sleppum við allt það versta sem við svo sannarlega þurfum ekki á að halda og höfum ekki viljað hingað til.