157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:47]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir hennar ræðu. Sumt sem þar var sagt get ég tekið undir, annað fellur kannski í annan flokk. Það sem fór örlítið fyrir brjóstið á mér var með hvaða hætti hún talaði um Evrópusambandið. Hún talaði um það sem hnignunarbandalagið og mér finnst, alveg óháð því hvaða skoðun við höfum á því hvort við eigum að eiga sæti þar við borðið og vera þátttakandi í því, að við ættum kannski að tala af smá virðingu við okkar nágranna. Ég held að við myndum ekki tala um Bandaríkin sem hnignunarþjóð, Noreg sem hnignunarþjóð eða svoleiðis. En þarna leyfir hv. þingmaður sér að tala um Evrópusambandið sem hnignunarbandalag. Það eru örugglega mörg hundruð þúsund manns manns sem hafa látist í Úkraínu vegna þess að þeir vildu reyna að komast inn í þetta hnignunarbandalag. Stríðið í Úkraínu gengur að mörgu leyti út á það að stóri nágranninn þeirra í austri vill ekki að Úkraína taki þátt í stórum vestrænum bandalögum, þar með talið ESB og NATO. Í Moldóvu hefur þeim sem vilja ganga inn í þetta hnignunarbandalag tekist að hafa þar sigur í kosningum þrátt fyrir stórskotalið falsfrétta og tilrauna til kosningasvika og annarra óheiðarlegra aðgerða af hálfu nágrannans í austri. Í Georgíu situr fólk, fjölmargir einstaklingar, í fangelsi fyrir það eitt að vilja ganga inn í þetta hnignunarbandalag. Flestar þjóðir sem hafa gengið í þetta hnignunarbandalag eru bara nokkuð sáttar við veru sína þar og lítil umræða er meðal þjóða t.d. í Miðaustur-Evrópu um að ganga þaðan út.

Mín fyrsta spurning í fyrra andsvari er því: Getur þingmaðurinn rökstutt þessi orð sín? Ætti hún ekki að tala kannski af örlítið meiri virðingu um Evrópusambandið, óháð skoðunum hennar á því hvort við eigum að ganga þar inn eða ekki?