Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mig langar til þess að byrja á því að leiðrétta eitt, það er víst þegar komin fram beiðni um umræðu hér um Draghi-skýrsluna frá hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni þannig að við hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir getum látið okkur hlakka til þeirrar umræðu og tekið virkan þátt í henni.
Ég er ekkert svakalega hissa á því að hv. þingmanni hafi sárnað orðum mínum um Evrópusambandið. Ég held að það þurfi ekkert mjög mikið til enda stendur bandalagið hjarta hans mjög nærri. Þegar ég tala um Evrópusambandið sem hnignunarbandalag þá er ég að tala um — ég hélt að þetta væri bara orðið almenn vitneskja. Ég hefði líka getað kallað bandalagið stöðnunarbandalag en mér finnst þetta bara ágætisárétting um að við vöndum það hvernig við tölum. Mér fannst ég ekki vera að tala af einhverri óvirðingu heldur frekar út frá staðreyndum.
Hv. þingmaður taldi hér upp ríki sem sækjast eftir inngöngu í Evrópusambandið; Úkraínu, Moldóvu og Georgíu. Ég hef á því fullan skilning. Við kannski deilum ekki í mörgu stöðu þessara þjóða. Hann hefði líka getað nefnt aðrar þjóðir sem eru í sömu stöðu, standa utan við Evrópusambandið en sækjast ekki eftir inngöngu. Við getum talað um Sviss og við getum talað um Noreg og við getum talað um Bretland. Það væri kannski nærtækara að ræða af hverju staðan er sú. Ég tek undir með hv. þingmanni, Evrópusambandið er greinilega bara fínn staður til að vera fyrir sumar þjóðir og ég skil það vel. Ég skil það vel að sumar þjóðir vilji gjarnan vera í Evrópusambandinu, skil það vel að Úkraína, Moldóva og Georgía vilji sækja þangað inn. En mér finnst það ekki sannfærandi málflutningur eða rökstuðningur fyrir okkur að sækja um aðild. En ég ber virðingu fyrir því að einhverjir kunni að vera þar inni og þegar ég er að tala um þessi efni (Forseti hringir.) þá er ég að ræða þau út frá þeirri vegferð ríkisstjórnarinnar, sem ég veit að hv. þingmaður tekur heils hugar undir, (Forseti hringir.) að Ísland eigi heima í þessum félagsskap í Evrópusambandinu og ég er algerlega ósammála því.