Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er ágætt að kalla eftir afstöðu sem flestra til Evrópusambandsins. Í upphafi ræðu sinnar sagði hv. þingmaður þó eitthvað á þá leið að ríkisstjórnin hefði óskorað umboð til að kanna hug þjóðarinnar til Evrópusambandsins og að ekki hefði verið kosið um það í kosningunum síðast.
Mig langar að minna hv. þingmann og þá sem kunna að vera að hlusta á þessa umræðu á það að í síðustu kosningum var nýr formaður hjá Samfylkingunni, núverandi hæstv. forsætisráðherra, sem hafði sett Evrópusambandsaðild til hliðar, lagt hana til hliðar. Það voru tvö stór mál sem þessi nýi formaður Samfylkingarinnar lagði til hliðar og það var eitthvað sem fengið hefur nafnið ný stjórnarskrá og Evrópusambandið. Eftir að Kristrún Frostadóttir, hæstv. forsætisráðherra, gerði það jókst fylgi Samfylkingarinnar til muna. Ef fólk hefur gleymt því þá er það svo að Samfylkingin fékk rétt rúm 20% í síðustu kosningum og 15 þingmenn kjörna, þegar stefnan fyrir kosningar var að setja Evrópusambandið til hliðar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki nógu góða kosningu, hann fékk rúmlega 19% og einum manni færri en Samfylkingin, 14 þingmenn. Það hefur alltaf verið stefna Sjálfstæðisflokksins að vera í EES en ekki vilja ganga inn í Evrópusambandið. Viðreisn er í rauninni eini flokkurinn á þingi sem hefur ávallt haft þetta mál á dagskrá og var stofnaður utan um það. Hann fékk 15,8% fylgi og 11 þingmenn. Flokkur fólksins, sem alltaf hefur neitað þessu og formaðurinn gerði það síðast með afdrifaríkum hætti í svörum í upphafi þessa þingfundar, fékk tíu menn og 13,8%. Hann hefur alltaf hafnað þessu. Miðflokkurinn hefur alltaf hafnað þessu. Þeir fengu 12%. (Forseti hringir.) Framsókn hefur hafnað þessu, með 7,8%. Píratar voru hlynntir þessu, þeir fengu 3% og duttu út af þingi. (Forseti hringir.) Ég spyr því hv. þingmann: Hvernig er þetta afgerandi stuðningur íslensku þjóðarinnar við að halda áfram aðildarviðræðum (Forseti hringir.) við Evrópusambandið eða kanna hug þjóðarinnar til þess?