157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:15]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. 15% þjóðarinnar kusu Viðreisn í síðustu þingkosningum og Viðreisn hefur alltaf haft það á stefnuskrá sinni og talar óhikað um að ganga inn í Evrópusambandið. Þau 20% sem kusu Samfylkinguna síðast hlustuðu líka á loforð formanns Samfylkingarinnar um að Evrópusambandsaðild yrði sett til hliðar því að hér átti að ræða það sem skiptir mestu máli í íslensku samfélagi. Þess vegna hljóta það að vera svik við þessa kjósendur þegar það eina sem við heyrum frá ríkisstjórninni er hækkun skatta og innganga í Evrópusambandið. Það sem hv. þingmaður segir hins vegar hér um að vilja sjá í pakkann — mér heyrist hv. þingmaður svolítið vera að nota þá orðræðu að skrifa ekki undir hvað sem er og þurfa að sjá hvað er í þessum samningi. Nú veit ég að hv. þingmaður er vel menntaður og vel að sér í þessum málaflokki. Getur hv. þingmaður samt ekki viðurkennt það hér fyrir alþjóð og þingheimi að það er alveg ljóst hvað Evrópusambandið er? Við vitum öll hvað Evrópusambandið er. Það breytist ekkert við að opna á einhverjar aðildarviðræður. Evrópusambandið verður ekkert annað en það er (Forseti hringir.) fyrir viðræður eða eftir viðræður. Það er alveg ljóst. Þetta er þá bara aðlögun að því sem Evrópusambandið er og snýst þetta þá um hvort (Forseti hringir.) aðlögunin sé tvö ár, fimm ár eða tíu ár?