Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir talar hér um að það sé ekkert innihald í umræðunni. Ég er ekki sammála því og ég vona að hún hafi upplifað það þannig að það væri innihald í hennar eigin ræðu. Annars er það frekar yfirlætisfullt að minnast á að allt það sem hér er sagt af öðrum hv. þingmönnum hafi ekkert innihald. Stendur hv. þingmaður við þau orð sín að það sem hér hefur farið fram sé innihaldslaust, að orð annarra hv. þingmanna séu innihaldslaus? Það er fyrsta spurningin. Einnig var einhver viðkvæmni fyrir því að tala um Evrópusambandið sem hnignunarbandalag. Hagvöxtur þar er ekki bara að minnka, hann er minni en í Bandaríkjunum, hann er minni en í Kína, hann er minni en í þróunarríkjunum og hann er minni en heimsmeðaltalið. Finnst hv. þingmanni það eitthvað annað en hnignun þegar þetta er augljóslega ekki tímabundið heldur virðist vera orðið varanlegt vandamál í Evrópusambandinu? Finnst hv. þingmanni það ekki líka skrýtið að á sama tíma og þessar tölur tala sínu máli regluvæðir Evrópusambandið allt í drasl? Af hverju vill hv. þingmaður að við förum í þessa vegferð?
Ég hef smá tíma fyrir fleiri spurningar. Svo kvartar hv. þingmaður yfir alls konar aðilum úr atvinnulífinu. Getur verið að þessir aðilar lifi í raunheimum og viti að Evrópusambandið er eins og það er? Þeir vita nákvæmlega að annaðhvort vill fólk fara þangað inn eða ekki, og það er auðvitað eina spurningin sem á að spyrja í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. (Forseti hringir.) Ég óttast að hv. þingmaður eins og aðrir í ríkisstjórninni treysti sér ekki til að spyrja að því. Ég spyr því líka: Treystir hv. þingmaður þjóðinni fyrir því að hún sé spurð beint: Viltu ganga inn í Evrópusambandið eða ekki?