157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:24]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er ekki rétt sem hv. þingmaður segir hér um að það séu engar varanlegar undanþágur í boði fyrir einstök aðildarríki Evrópusambandsins. (Gripið fram í.)

(Forseti (KÁB): Vinsamlegast ekki vera með nein framíköll. )

Ég ætla að biðja hv. þingmann um að leyfa mér að svara. (NMG: Ég sagði bara eitt orð hérna til að halda þér við efnið. )(Forseti hringir.)

(Forseti (KÁB): Ég vil biðja þingmenn um að vera ekki með framíköll í þingsal. Takk fyrir. )

Ýmis fordæmi eru fyrir því í til að mynda evrópskum landbúnaði að veittar séu sérstakar stuðningsaðgerðir við landsvæði sem eru mjög norðarlega. Það er hægt að líta til margra landsvæða, t.d. Finnlands, þar sem veittar eru sérstakar stuðningsaðgerðir til bænda á norðlægum slóðum sem bjóðast ekki bændum innan sama geira t.d. í Frakklandi eða á Ítalíu. Þetta er svokallaður heimskautalandbúnaður. Varðandi hvernig þetta myndi líta út fyrir Ísland er ég síðasta manneskjan til að segja: Ég hef svarið við því. (Forseti hringir.)

Varðandi það að svíkja kosningaloforð tek ég ekki undir þann skilning hv. þingmanns að það felist einhver svik við kjósendur (Forseti hringir.) míns flokks í því að hér sé þjóðinni veitt val um það að halda ýmist áfram sinni vegferð innan Evrópska efnahagssvæðisins sem aðili að (Forseti hringir.) EES-samningnum eða að aðildarsamningur verði gerður við Evrópusambandið og lagður fyrir þjóðina til kosningar.