157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:26]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að beina orðum mínum til hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur af því að í allri þessari umræðu sem er búin að vera í dag, þegar við erum að ræða alþjóðamálin, er búið að búa til svolitla hræðslu um að við verðum að sækja einhverjar varnir til Evrópusambandsins, eins og það sé orðið eitthvert lykilatriði. Umræðan hefur legið svolítið þar í dag. Við erum stofnaðilar að NATO og með varnarsamning við Bandaríkin sem hefur verið sterkasta stoðin. Við erum í NORDEFCO, við erum í JEF. Varnarskipulagi Atlantshafsbandalagsins hefur líka verið breytt á síðustu árum. Það skiptist núna meira í norðurhluta, miðhluta og suðurhluta Evrópu, sem er í kringum Miðjarðarhafið. Það er svona viðmiðið í uppsetningu á vörnum landsins og það hefur lítið verið rætt hér í dag vegna þess að umræðan hefur farið í eitthvað allt annað. Fjárveitingar til varnar- og öryggismála til Evrópusambandslandanna innan NATO eru um 20% af heildarfjármagni sem fer til varnar- og öryggismála.

Sá sem hér stendur sat ráðstefnu í Helsinki haustið 2022 þar sem finnski utanríkisráðherrann var spurður: Dugar 7. liður 42. gr. Lissabon-samningsins? Af hverju dugar hann ekki bara fyrir vörnum? Þá sagði finnski utanríkisráðherrann: Það eru engar varnir fyrir Finnland í Lissabon-sáttmálanum. Það sama átti við um Svía, Svíarnir eltu líka út af þessu. Sá sem hér stendur spurði sænska fulltrúann á þessari ráðstefnu. Er þetta ekki það sem við eigum að vera að ræða hér í dag, hvernig vörnum okkar og öryggi er best fyrir komið og hvernig við eigum að treysta það (Forseti hringir.) með núverandi hætti í gegnum NATO og samstarf við Bandaríkin en ekki missa okkur alveg í einhverri annarri umræðu?(Forseti hringir.) Þá er ég að tala um meginatriðin í þeirri umræðu sem við eigum í hér.