157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:28]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir fína spurningu. Eigum við að fara á dýptina í öllum þeim þáttum sem fallið geta undir utanríkismál í umræðu sem ber heitið alþjóðamál eða eigum við að einbeita okkur að varnarmálum sem eru kannski einna nærtækust núna? Eigum við að vera að blanda varnarmálum við Evrópusambandið? Þetta er ekki umræða sem er einskorðuð við varnarmál. Ef hún væri það værum við kannski á örlítið öðrum nótum. Ég ætla að segja það hér að ef umræðan væri um öryggi og varnir landsins og einskorðuð við varnir væri ég sennilega ekki að ræða hér sérstaklega um kosti og tækifæri á því sviði innan Evrópusambandsins. Hvernig vörnum landsins verður háttað verður ekki okkar haldreipi hér í þeim umræðum og viðræðum sem kunna að fara af stað við Evrópusambandið. Það verður ekki rauði þráðurinn í því. Ég vil ekki að íslenska þjóðin taki sína ákvörðun út frá því að vera óttaslegin. Ég vil að hana langi til að fara inn í Evrópusambandið. Mögulega langar hana það ekki. Það er bara niðurstaða sem við verðum að virða. Svo því sé bara skýrt komið á framfæri hér af minni hálfu held ég að vörnum okkar væri best komið í sem nánustu samstarfi við Bandaríkin. Það er besti kosturinn fyrir Ísland að því virtu að viðkomandi samstarfsaðili ætli sér áfram að virða alþjóðalög og samninga sem gerðir hafa verið. Við ætlum að ganga út frá því. En nei, Lissabon-samningurinn og Evrópusambandið sem eiginlegt varnarbandalag var ekki hugsað sem slíkt. Það var hugsað sem samstarf fullvalda og frjálsra Evrópuþjóða sem vildu tryggja í sameiningu frið (Forseti hringir.) með því að vera hver annarri háðar í viðskiptum, í því skyni að þær berðust ekki (Forseti hringir.) sín á milli með þeim hætti sem gert var í seinni heimsstyrjöldinni og þeirri fyrri.