157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:34]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla ekki að fara að karpa hér við hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson og þakka honum fyrir spurninguna og umvöndunina um það að heimskautalandbúnaðarkerfi Evrópusambandsins feli ekki í sér ákvarðanir og sérstök kjör fyrir þá aðila sem stunda sinn landbúnað norðan við 62. breiddargráðu og gera það við erfiðari aðstæður en þeir sem sunnar eru. Þetta er staðreynd. Við skulum endilega hafa sérstaka umræðu um það. Ég skal reyna að láta að mér kveða í henni. Þetta er hafið yfir allan vafa. Undanþágur og sérmeðferð innan Evrópusambandsins þekkjast og eru jafn gullið stef innan þess samstarfs, þar sem viðurkennt er að saman eru þjóðirnar sameinaðar í fjölbreytileika sínum, og að það þurfi að stilla hlutina af. Þetta er viðloðandi stef og á að vera það og verður það áfram. Í aðildarsamningi býðst okkur að taka afstöðu (Forseti hringir.) til ákveðinna atriða sem falla utan EES-samningsins, til að mynda í sjávarútvegi, til að mynda varðandi fasteignakaup erlendra ríkisborgara, t.d. eins og Danir gerðu. (Forseti hringir.) Ég ætla alla vega að lofa því að hlæja ekki og fussa og sveia þegar hv. þingmaður tekur til máls í þeirri umræðu. Ég hlakka til þegar að henni kemur.

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma.)