157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:37]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Þetta kveikir greinilega í tilfinningum þingmanna og það er gott. Varanlegar undanþágur, sérmeðferðir, breytingar sem gerðar eru á stofnsáttmálum varðandi hagsmuni einstakra ríkja þegar þær koma inn — þetta þurfum við allt að ræða á dýptina. Ég hef takmarkaðan tíma til að fara yfir það hvað boðist hefur eyríkjum á borð við Kýpur og Möltu, hvaða sameiginlegu aðgerðir hafa farið fram af hálfu sambandsins í þágu einstakra smáríkja þar sem þessi smáríki, þótt fámenn séu, eiga sæti við borðið, ekki bara fyrir utan fundarherbergið og ætla ég nú ekki að gera lítið úr þeim umbótum sem hv. þingmaður gerði í tíð sinni sem utanríkisráðherra, þeim góðu umbótum sem gerðar voru á hagsmunagæslu Íslands í Brussel, sem voru mikilvægt og farsælt skref. Fólkið í landinu má alveg hafa skoðanir á því hvort það sé nóg. Kannski er það nóg og kannski getum við gert betur þar (Forseti hringir.) en þetta er eitthvað sem við verðum að fá að ræða og eigum að ræða. (GÞÞ: Algjörlega. )(Forseti hringir.) Þá verðum við líka að fá að kjósa um það.