157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:38]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf):

Virðulegi forseti. Við lifum á tímamótum þar sem alþjóðalög og reglur sem vestræn ríki hafa reitt sig á áratugum saman eru í uppnámi. Það er vaxandi spenna milli ríkja og aukin óvissa í alþjóðaviðskiptum. Það sem áður var talið óhugsandi er nánast daglega í fréttum. Öryggi, velferð og virðing fyrir sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétti ríkja er ekki eins sjálfgefin og áður þótt hún hafi að sjálfsögðu aldrei verið það til fulls. Friður, stöðugleiki og hagvöxtur hvíla á grunni sem þarf stöðugt að rækta, verja, styrkja og gagnrýna.

En í öllu þessu samhengi stendur Ísland frammi fyrir einfaldri en afdrifaríkri spurningu: Hvað getum við gert í þeirri stöðu sem nú ríkir?

Fámenn ríki eins og Ísland eru auðvitað í allt annarri stöðu en stórveldi heimsins og jafnvel flest millistór ríki. Við eigum allt okkar undir því að alþjóðalög og reglur séu virt. Íslendingar geta hins vegar gert ýmislegt til að styrkja stöðu sína innan þeirra samninga og bandalaga sem þjóðin á aðild að. Þar liggur beinast við að styrkja þá innviði sem fyrir eru og byggja upp nýja. Innviðir eru ekki bara vegir og brýr, ekki bara rafmagnslínur, hafnir eða fjarskipti. Innviðir eru burðarás hvers þjóðfélags. Þeir tryggja heimilum, fyrirtækjum og stofnunum rafmagn og hita, ekki bara á góðum dögum heldur þegar mest á reynir. Traustir innviðir sjá til þess að matvæli og aðrar nauðsynjar berist til landsins, að heilbrigðiskerfið standist álag, að stjórnsýslan virki og að lýðræðið sjálft haldi velli. Sterkir innviðir eru ekki munaður, þeir eru og eiga að vera forsenda sjálfstæðis þjóðarinnar.

Með því að viðhalda og byggja upp innviði á öllum sviðum samfélagsins aukum við viðnámsþrótt þjóðarinnar þegar áföll dynja yfir. Traustir innviðir eru grundvöllur þess að geta aðlagast breytingum. Samfélag með mikinn viðnámsþrótt kann að bogna en brotnar ekki við fyrsta högg.

Það er nauðsynlegt að efla ýmsa innviði með skýrum forgangi og langtímahugsun. Í fyrsta lagi þarf að treysta orkuöryggi þjóðarinnar. Ekki bara framleiðslugetuna, heldur einnig og ekki hvað síst flutningskerfið, dreifingu orkunnar og varnir gegn truflunum á orkukerfinu. Orkan er lífæð samfélagsins, án hennar stöðvast allt.

Í öðru lagi þarf að bæta samgöngu- og flutningskerfið. Það ber að horfa á samgöngukerfið í heild sinni, vegina, hafnirnar og flugvellina, en ekki sem aðskilda hluti. Öflugt og öruggt samgöngukerfi er grundvallaratriði þegar allt er í sómanum og enn mikilvægara þegar eitthvað bjátar á.

Í þriðja lagi skiptir öryggi lands og þjóðar höfuðmáli. Það hefur legið fyrir lengi að það er bráðnausynlegt að efla Landhelgisgæsluna, lögregluna og aðra viðbragsaðila til að mæta nýjum og vaxandi áskorunum. Við getum einfaldlega ekki treyst því að þetta reddist eins og Íslendingum er svo tamt að segja, þótt sá þáttur í þjóðarsálinni hafi fleytt okkur langt.

Í fjórða lagi verða sjúkrahúsin og heilsugæslan um land allt að ráða við vaxandi kröfur og áskoranir. Það er hluti öflugra innviða þjóða að tryggja að til séu nægjanlegar birgðir af lyfjum og blóði, svo dæmi séu nefnd.

Í fimmta lagi er bráðnauðsynlegt að byggja upp og verja stafræna innviði þjóðarinnar og netöryggi. Upplýsingakerfi ríkisins, sveitarfélaganna og annarra mikilvægra aðila verða að vera sterk og vel varin ásamt öllum fjarskiptaleiðum. Þessir þættir skipta ekki síður máli en aðgangur að góðu heilbrigðiskerfi, rafmagni og vatni. Netárásir eru orðnar daglegt brauð og geta jafnvel lamað heilu samfélögin á augabragði.

Í sjötta lagi þarf að rækta þann mannauð sem samfélagið býr yfir. Innviðir eru ekki bara steypa og stál. Fólkið sjálft er forsenda alls. Menntun, þjálfun, viðbragðshæfni og þekking eru lykillinn að því að öll kerfi virki þegar á reynir.

Þegar á allt er litið skiptir mestu máli að allir geri sér grein fyrir að viðnámsþróttur byggir ekki á einhverjum einum þætti heldur á heildaryfirsýn með samfelldri stefnu. Þegar kemur að innviðum þjóðarinnar dugar ekki að hugsa fjögur ár eða eitt kjörtímabil fram í tímann. Við uppbyggingu innviða þarf að horfa 20, 30 og jafnvel enn fleiri ár til framtíðar Öryggi, innviðir og viðnámsþróttur eru ekki mál eins flokks eða ríkisstjórnar. Þetta eru grundvallarmál sem snerta okkur öll.

Við verðum ávallt að muna að við erum þjóð á meðal þjóða og við þurfum að taka stöðu okkar sem slík.