Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, ekki af því að ég hafi verið sammála henni en ég er ánægður með að hv. þingmaður sé einlægur í því að tala um hlutina eins og þeir eru. Hér kemur hv. stjórnarþingmaður og talar fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Það er fullkomlega heiðarlegt. Hann færir rök fyrir því og er ekki í neinum feluleik. Þannig eigum við að ræða þessi mál og ég vil nota tækifærið og vonast til þess að ég megi eiga orðaskipti við hann, hvort sem það er hér eða á opinberum vettvangi, í fjölmiðlum eða annars staðar þar sem við ræðum nákvæmlega þessi mál, því að um það snýst málið.
Auðvitað er miður í þessari umræðu, sem hefði átt að vera góð pólitísk samstaða um, að hæstv. utanríkisráðherra hafi kveikt í húsinu og verið hérna eins og fíll í postulínsbúð. Gott og vel, við erum komin hingað og við erum að ræða þessi mál. Það er fyrirséð að ég er fullkomlega ósammála hv. þingmanni þegar hann segir að við skulum ganga úr EES og mér finnst það vera útúrsnúningur, enda var það þannig þegar t.d. Svíþjóð, Finnland, Noregur og Austurríki voru að fara þá kusu þau um það hvort þau ættu að vera áfram í EES eða fara í ESB. Það er tveggja stoða lausn og við þekkjum hvaða stofnanir við erum í þegar við erum EFTA-megin í tilverunni. Förum þó ekki í það. Ýmislegt annað má gera athugasemdir við og ég vil nota tækifærið hér og beina orðum mínum til hv. þingmanns: Hér koma í fullri alvöru stjórnmálamenn sem segja að það sé eitthvað um að semja við inngöngu í Evrópusambandið og að við fáum varanlegar undanþágur. Nú veit hv. þingmaður að ég veit að hann veit um hvað málið snýst og ég ætla að spyrja hv. þingmann: Um hvað er hægt að semja þegar þú gengur í Evrópusambandið? Ég bið hv. þingmann að láta þing og þjóð vita ef hann veit um varanlegar undanþágur og hverjar þær þá eru.