Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að þetta svar hv. þingmanns olli mér miklum vonbrigðum og hann, því miður, eins og aðrir þingmenn og stjórnmálamenn sem eru að tala fyrir þessu, féll á prófinu. Hv. þingmaður þekkir þetta nákvæmlega. Hann veit nákvæmlega hvernig undanþágan kom til þegar Danir fengu undanþágu varðandi sumarhúsin. Hann veit það nákvæmlega. Hvort það var Maastricht eða Lissabon, ég man nú ekki hvort það var eða eitthvað fyrir það, það var ríkjasamningur og menn voru að, ekki á góðri íslensku, „upgrade“-a samninginn og fóru inn á önnur svið sem hafði ekki verið og til þess að það væri samþykkt þá voru Danir á þeim tíma og Írar á þeim tíma í þeirri stöðu að segja: Ókei, gott og vel. Þið farið þessa leið en við ætlum að nota tækifærið núna, vitum að það er síðasti séns, og við ætlum ekki að taka þátt í þessu. Þetta er ekki dæmi um það að þegar menn sækja um aðild að Evrópusambandinu þá geti þeir fengið varanlegar undanþágur, ekki frekar en norræni landbúnaðurinn sem þýðir að þú verður að vera aðili að sameiginlegu sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnunni. Það er sett inn í sameiginlegu sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnuna, alveg eins og það sem vísað var til, þessi litla sjálfstjórn sem er hjá Möltu. Þetta er sett inn í sameiginlegu stefnuna og er ekki varanleg undanþága. Því er stjórnað frá Brussel ef menn vilja breyta því í framtíðinni, ekki lengur frá Helsinki, ekki lengur frá Stokkhólmi. Hv. þingmaður veit nákvæmlega að það sem hann nefndi þarna er ekki til komið vegna þess að löndin sóttu um og sögðu: Við viljum ekki taka þátt í þessu. Það er ekki þannig. Þau voru í samstarfinu. Menn ákváðu að bæta við samstarfið og á þeim tímapunkti gátu viðkomandi þjóðir sagt, sem voru inni í sambandinu: Við erum ekki að fara að samþykkja þetta nema við séum þarna fyrir utan. Þetta hefur ekkert með það að gera að viðkomandi þjóðir væru að sækja um og væru með, eins og kallað er, „à la carte“ matseðil (Forseti hringir.) og gætu sagt: Ég má taka þetta en ég vil ekki þetta, ég ætla ekki eftirréttinn, ég ætla ekki að fá tiramisu, ég ætla að fá crème brûlée. (Forseti hringir.) Þetta er ekki þannig og hv. þingmaður veit það, hann hefur skrifað um það og talað um það úr þessum ræðustól.