Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og tek undir með hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni varðandi það að það er í það minnsta ákveðinn heiðarleiki af hálfu hv. þingmanna Viðreisnar og stjórnarliða þaðan að vera í grímulausum áróðri fyrir inngöngu í Evrópusambandið á meðan aðrir stjórnarliðar, til að mynda Samfylkingin og nú eru að tínast til einhverjir í Flokki fólksins, hafa gert þetta aðeins undir radar og jafnvel blekkt kjósendur til fylgis við sig undir öðrum formerkjum.
En gott og vel, ég ætlaði að eyða tímanum hér í nokkrar spurningar af því ég hef þær fjölmargar. Mig langar til þess að byrja á tveimur. Annars vegar langar mig að spyrja hv. þingmann út í orð hans um það að við þurfum að styrkja fjölþjóðlega samvinnu um öryggis- og varnarmál og mig langaði að spyrja hv. þingmann út í það til hvaða samvinnu hann er að vísa í þeim efnum. Hins vegar langar mig til að spyrja hv. þingmann út í það hvort hann telji að hæstv. ríkisstjórn hafi lagt nægjanlega áherslu að hans mati á samstarfið og samvinnu við Bandaríkin á þessu kjörtímabili og í hverju það hafi falist, hvort hann geti talið það upp fyrir okkur.